Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   lau 25. júlí 2020 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hodgson: Zaha myndi glaður yfirgefa Palace
Mynd: Getty Images
Wilfried Zaha myndi glaður yfirgefa Crystal Palace samkvæmt stjóra félagsins, Roy Hodgson.

Zaha, sem er 27 ára gamall, vildi fara síðasta sumar og Arsenal er sagt hafa boðið 40 milljónir punda í vængmanninn.

„Það er 64 þúsund punda spurning þessi spurning er það ekki? Þetta er alltaf spurning með leikmenn en ekki bara Zaha. Það eru leikmenn í öllum félögum sem falla í þennan flokk."

„Wilf hefur sagt það frá því ég kom að hann myndi glaður fara í annað félag og feta nýjan stíg. Hann er hins vegar mjög verðmætur leikmaður og félagið veit verðgildi hans og kann að meta hann. Ég hef í raun ekki svar við spurningunni en við munum sjá hvað gerist,"
sagði Hodgson loðinn í svörum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner