Donni: Við eigum úrslitaleiki eftir
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Við vissum það að Selfoss er með hörkugott lið og hafa verið að ná mjög góðum úrslitum á móti liðum í efri hlutanum, búnar að standa sig virkilega vel. Þær gefa fá færi á sér og hafa ekki verið að fá mörg mörk á sig. Ég er mjög hrifinn af þessu Selfoss liði,\" sagði Donni eftir 2-0 sigur gegn Selfoss á Þórsvellinum í dag.
Þór/KA komst yfir með marki á fjórðu mínútu.
„Það var vel gert hjá okkur að ná marki snemma, það hjálpaði mjög mikið. Við vissum að Selfoss myndi ekki skora mörg mörk hjá okkur þannig það var mjög gott að ná marki snemma, það létti á pressunni. Svo kom mjög gott mark í lokinn.\"
Selfoss gaf Þór/KA ekki mikill færi á sér í leiknum.
„Selfoss liðið er bara hörkugott, skipulagt og flott í heild sinni þannig við vorum aldrei að fara að skapa mörg færi. Við nýtum hins vegar færin okkar, fengum ekki mörg en skorum samt tvö. Ég er mjög ánægður með það, spilamennskan út á velli var ekki spes í fyrri hálfleik en seinni hálfleikur betri. Við stjórnum leiknum betur þá og fengum færi upphlaup á okkur. Ég er ánægðari með seinni hálfleikinn frekar en fyrri.\"
María og Karen María, ungir varamenn settu sitt mark á leikinn hjá Þór/KA.
„Ótrúlega ánægður með þær, mjög stoltur af þessum stelpum og bara stoltur af liðinu. Við erum að halda haus, við erum ekki að misstíga okkur heilt yfir í sumar. Við erum búinn að koma okkur í góða stöðu, eiga þessa úrslitaleikir eftir. Við byrjum á næsta og tökum hann eins fagmannlega og við mögulega getum og sjáum hvert það leiðir okkur.\"
Síðustu þrír leikir í deildinni eru á móti Breiðablik, Val og Stjörnunni en Breiðablik og Þór/KA berjast um Íslandsmeistaratitillinn.
„Mér líst bara mjög vel á það, við ætlum að vinna Breiðablik og svo vinna Val og Stjörnuna. Öll þessi lið eru örugglega að hugsa það sama og við en við teljum okkur vera betri en þessi lið og ætlum að sýna það. Við bíðum bara með eftirvæntingu, ég get lofað ykkur því að stelpurnar koma brjálaðar til leiks. Við ætlum að taka titillinn sem við eigum.\"
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.