Fotbolti.net
27.08.18 - 20:22
Ívan Guðjón Baldursson

Helgi Sig: Keflavík verður erfiðasti leikurinn í sumar

Auglýsing
Helgi Sig: Keflavík verður erfiðasti leikurinn í sumar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

<i>„Við sýndum það í dag hvers megnugir við erum. Þegar við gerum þetta sem lið þá erum við frábærir,\"</i> sagði Helgi Sigurðsson eftir mikilvægan 3-1 sigur fallbaráttuliðs Fylkis gegn Grindavík.
Daði Ólafsson bakvörður skoraði tvö og lagði eitt upp en Helgi vildi ekki einblína á hann og hrósaði frammistöðu liðsins í heildina í hástert.

Næsti leikur Fylkis er gegn botnliði Keflavíkur sem er þegar fallið og er það auðveldur leikur á blaði. Helgi veit þó að fótbolti er ekki spilaður á blaði og býst við gríðarlega erfiðum leik, jafnvel erfiðasta leik sumarsins.

„Það verður erfiðasti leikurinn í sumar. Ég þekki það sjálfur að þegar lið er fallið þá leysist oft úr læðingi einhver orka sem hefur ekki verið til staðar áður. Þess vegna þurfum við að taka þeim leik mjög alvarlega.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.