Búist við öðru tilboði frá Arsenal - Býr Fati til pláss fyrir Rashford? - Hvað verður um Tel?
   mið 29. janúar 2025 09:47
Elvar Geir Magnússon
Freyr missir einn sinn efnilegasta leikmann í langtímameiðsli
Niklas Jensen Wassberg (til vinstri) í leik með U19 landsliði Noregs.
Niklas Jensen Wassberg (til vinstri) í leik með U19 landsliði Noregs.
Mynd: Getty Images
Freyr Alexandersson og hans menn í Brann hafa orðið fyrir áfalli en einn efnilegasti leikmaður liðsins, hinn tvítugi Niklas Jensen Wassberg, varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum.

Þetta eru gríðarleg vonbrigði fyrir leikmanninn unga, sem er unglingalandsliðsmaður Noregs, og á heimasíðu Brann eru fjölmiðlar beðnir um að virða það að hann vilji ekki veita nein viðtöl á þessum tímapunkti.

Wassberg meiddist illa á hinu hnénu á síðasta ári, í leik gegn Viking, og hefur ekki spilað síðan.

Arne Instebö, læknir Brann, segir það algjöra óheppni að hann hafi orðið fyrir þessum meiðslum núna. Hann hafi staðist allar skoðanir fyrir undirbúningstímabilið.

„Þetta er ótrúlega sárt fyrir Niklas sem hefur lagt á sig mikla vinnu til að snúa aftur á fótboltavöllinn. Maður finnur mikið til með honum en hann mun fá alla aðstoð frá okkur sem við getum veitt," segir Instebö.

Freyr tók við þjálfun Brann fyrr í þessum mánuði en norska úrvalsdeildin hefst þann 29. mars, þá leikur Brann gegn Fredrikstad.
Athugasemdir
banner