Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 22:47
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Augnablik skoraði fimm gegn Elliða
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Augnablik 5 - 1 Elliði
1-0 Breki Barkarson ('14)
2-0 Þorleifur Úlfarsson ('18)
3-0 Breki Barkarson ('31, víti)
4-0 Þorleifur Úlfarsson ('50)
4-1 ('63)
5-1 Sindri Sigvaldason ('90)

Augnablik og Elliði mættust í riðlakeppni C-deildar Fótbolta.net fyrr í kvöld og höfðu heimamenn betur í Fífunni.

Breki Barkarson og Þorleifur Úlfarsson skoruðu tvennu hvor og var staðan orðin 4-0 þegar Árbæingar minnkuðu muninn.

Sindri Sigvaldason skoraði síðasta mark leiksins á 90. mínútu og lokatölur 5-1 fyrir Augnablik.

Augnablik er með þrjú stig eftir tap gegn Kórdrengjum í fyrstu umferð. Elliði er stigalaus eftir að hafa beðið lægri hlutar gegn Árborg í fyrsta leik.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner