Tindastóll fær mikinn liðsstyrk (Staðfest)
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli er að styrkja sig fyrir komandi átök í 4. deildinni og hefur bætt nokkrum öflugum leikmönnum við sig sem búa yfir góðri reynslu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25147 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli er að styrkja sig fyrir komandi átök í 4. deildinni og hefur bætt nokkrum öflugum leikmönnum við sig sem búa yfir góðri reynslu.
Guðmundur Páll Einarsson er orðinn nýr leikmaður KFG eftir að hafa alist upp hjá Vestra og spilað 12 leiki fyrir félagið í Lengjudeildinni.
Dalvík/Reynir var að krækja í Björgvin Mána Bjarnason, sóknartengilið sem kemur úr röðum KA.
Bakvörðurinn knái Óli Valur Ómarsson mun leika með Stjörnunni í sumar en hann kemur á lánssamningi frá sænska félaginu Sirius.
Lazio er búið að staðfesta ráðningu á nýjum þjálfara eftir að Maurizio Sarri var látinn taka pokann sinn á dögunum.
Ralph Hasenhuttl hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni.
Íslenskar fréttir eru áberandi á lista yfir mest lesnu fréttir síðustu viku. Koma Gylfa Sig í Val vakti mikla athygli en mestu athygli vöktu ummæli Ragnars Sigurðssonar um ástæðuna fyrir því að hann dró sig úr landsliðsverkefninu í Bandaríkjunum árið 2021. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðutu viku.
Grindavík hefur fengið góðan liðsstyrk þar sem markvörðinn Katelyn Kellogg hefur skrifað undir samning við félagið út komandi tímabil í Lengjudeild kvenna. Katelyn lék í marki Fjölnis á síðustu leiktíð.
Spánverjinn Ion Perello hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík.
Kantmaðurinn Hassan Jalloh hefur fengið félagaskipti yfir í Grindavík og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Fótbolti.net sagði fyrst frá þessum skiptum fyrir rúmum mánuði síðan. Hassan er fjölhæfur sóknarmaður sem gekk í raðir HK fyrir sumarið 2022. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni og spilaði svo 24 leiki í Bestu deildinni síðasta sumar.
HK hefur samið við miðjumanninn Viktor Helga Benediktsson en hann gerir tveggja ára samning í Kópavoginum.
Víðir Garði er að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deild karla eftir að liðinu mistókst að komast upp úr deildinni í fyrra. Víðir endaði aðeins fjórum stigum frá öðru sætinu og ætlar að gera betur í ár.
ÍR hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu og er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna, eftir að hafa sigrað 2. deildina í fyrra.
Hvíti riddarinn hefur verið duglegur að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og voru Mosfellingar að tryggja sér þjónustu Sindra Snæs Vilhjálmssonar, sem er fæddur 2002.
Danski framherjinn Anton Söjberg sem lék með HK seinni hluta síðasta tímabils hefur samið við færeyska félagið B36. Söjberg kom til HK í glugganum og skoraði fjögur mörk í níu leikjum og lagði upp eitt. Hann var samningsbundinn HK út komandi tímabil en rifti samningnum í vetur.
Víkingur og Grindavík hafa gert samkomulag um að meistaraflokkar Grindavíkur leiki og æfi á Víkingssvæðinu í Safamýri í sumar. Völlurinn var heimavöllur Fram á meðan verið var að byggja aðstöðuna í Úlfarsárdal og síðan léku Kórdrengir heimaleiki sína þar. Svæðið er nú komið í hendur Víkings.
ÍBV og Eiður Aron Sigurbjörnsson hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins við félagið. Frá þessu er greint í yfirlýsingu frá félaginu. Eiður skrifaði undir samning í fyrra sem átti að gilda út tímabilið 2025. Hann er 34 ára miðvörður og var fyrirliði liðsins í byrjun síðasta tímabils. <a href="https://www.fotbolti.net/news/21-07-2023/eidur-aron-alex-alveg-jafn-mikill-fyrirlidi-lidsins-og-eg" target="_blank">Það hins vegar breyttist um miðbik síðasta tímabils.</a> <a href="https://www.fotbolti.net/news/22-12-2023/ibv-ekki-fengid-neitt-tilbod-i-eid-aron" target="_blank">Eiður var orðaður við Vestra í vetur.</a> ÍBV féll úr Bestu deildinni á síðasta tímabili og verður því í Lengjudeildinni í sumar.
Gylfi Þór Sigurðsson var í morgun tilkynntur sem nýr leikmaður Vals. Hann skrifar undir tveggja ára samning við Hlíðarendafélagið. Hér að neðan má sjá það helsta af X (áður Twitter) um komu Gylfa til Vals.
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Val en þetta kemur fram í tilkynningu frá Hlíðarendafélaginu.
Grindavík var að fá liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni því Kwame Quee er genginn í raðir félagsins. Fótbolti.net greindi fyrst frá því að Kwame væri á leiðinni fyrir rúmum mánuði síðan. Hann kemur frá Síerra Leóne og er hann sjöundi leikmaðurinn sem Grindavík fær í vetur.