Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 02. febrúar 2020 13:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Minamino: Gleymi aldrei hvað Klopp sagði fyrst
Takumi Minamino.
Takumi Minamino.
Mynd: Getty Images
Takumi Minamino gekk til liðs við Liverpool í byrjun janúar frá Red Bull Salzburg í Austurríki.

Minamino er ánægður með lífið í Liverpool.

„Ég er kominn í mitt eigið húsnæði og er að koma mér fyrir, ég er ánægður með lífið í Liverpool. Allir leikmenn hafa komið mjög vel fram við mig en sérstaklega Naby Keita og Sadio Mane, það hefur einnig hjálpað mér talsvert að hér eru leikmenn sem tala þýsku."

„Dagskráin er mjög þétt þessa dagana svo það er ekki mikill tími í að læra ensku en þegar við erum að ferðast á milli staða nýti ég tímann í að lesa bækur," sagði Minamino.

Minamino segist aldrei gleyma því fyrsta sem Jurgen Klopp sagði við hann.

„Ég gleymi því aldrei sem hann sagði, hann sagði að ég gæti spilað eins og ég vildi og að ég ætti að njóta þess að spila eins og mér þætti best."
Athugasemdir
banner
banner