Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 09. janúar 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Saga Líf framlengir við Þór/KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Saga Líf Sigurðardóttir sem er fædd árið 1999, leikmaður Þór/KA hefur framlengt samning sinn við félagið út árið 2022. Þetta kemur fram á heimasíðu Þór/KA.

Saga á að baki 34 leiki í efstu deild með Þór/KA en hún lék 18 leiki á síðustu leiktíð í deild og bikar.

Hún spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið árið 2016 og lék einnig einn leik 2017 þegar Þór/KA varð Íslandsmeistari. Þá varð hún Íslands og Bikarmeistari með 2. flokki það ár.

„Við óskum Sögu Líf til hamingju með samninginn og fögnum því að hún verði áfram í herbúðum okkar," segir í tilkynningu frá Þór/KA.
Athugasemdir
banner
banner