Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 11. september 2022 13:10
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Leiknis og Vals: Patrick, Heiðar og Lasse byrja hjá Val
Patrick Pedersen byrjar hjá Val.
Patrick Pedersen byrjar hjá Val.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hjalti byrjar hjá Leikni.
Hjalti byrjar hjá Leikni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir og Valur mætast í 21. umferð Bestu-deildar karla klukkan 14:00 en leikið er í Breiðholtinu. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.


Lestu um leikinn: Leiknir R. 1 -  0 Valur

Sigurður Heiðar Höskuldsson þjálfari Leiknis gerir tvær breytingar á liðinu sínu frá 9 - 0 tapinu gegn Víkingi í vikunni. Hjalti Sigurðsson og Daníel Júlían Jónsson koma inn fyrir Róbert Quental og Kristófer Konráðsson.

Þrír leikmenn Vals verða í banni vegna uppsafnaðra áminningar. Aron Jóhannsson og Haukur Páll Sigurðsson hafa safnað sjö gulum spjöldum og Sebastian Hedlund fjórum. Valur tapaði 1 - 0 fyrir Breiðabliki í síðasta leik og  Ólafur Jóhannesson þjálfari liðsins gerir þrjár breytingar frá þeim leik.  Heiðar Ægisson, Lasse Petry og Patrick Pedersen koma inn fyrir þá Hauk Pál Sigurðsson, Aron Jóhannsson og Arnór Smárason.

Beinar textalýsingar:
14:00 KA - Breiðablik
14:00 FH - ÍA
14:00 KR - Stjarnan
14:00 Keflavík - Víkingur
14:00 ÍBV - Fram
14:00 Leiknir - Valur


Byrjunarlið Leiknir R.:
1. Viktor Freyr Sigurðsson (m)
4. Bjarki Aðalsteinsson (f)
5. Daði Bærings Halldórsson (f)
7. Adam Örn Arnarson
14. Davíð Júlían Jónsson
15. Birgir Baldvinsson
17. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Emil Berger
20. Hjalti Sigurðsson
28. Zean Dalügge
80. Mikkel Jakobsen

Byrjunarlið Valur:
1. Frederik Schram (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Jesper Juelsgård
4. Heiðar Ægisson
5. Birkir Heimisson
9. Patrick Pedersen
11. Sigurður Egill Lárusson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson
18. Lasse Petry
19. Orri Hrafn Kjartansson
22. Ágúst Eðvald Hlynsson
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner