Sterkasta lið 19. umferðar - Tvennur út um allt

jakob Snær var einn af þeim sem skoraði tvennu í umferðinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri gerði góða ferð norður.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

jakob Snær var einn af þeim sem skoraði tvennu í umferðinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur styrkti stöðu sína á toppi Bestu deildarinnar og er með átta stiga forystu eftir 4-2 útisigur gegn FH. Gunnar Vatnhamar, Gylfi Þór Sigurðsson og Valdimar Þór Ingimundarson skoruðu allir fyrir Víking í leiknum en glæsilegt mark Gylfa má sjá hér fyrir neðan.

Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ

Talandi um glæsimörk þá skoraði Haukur Andri Haraldsson geggjað mark í 3-1 útisigri ÍA gegn ÍBV og fyrra markið sem Eiður Orri Ragnarsson skoraði í 2-0 útisigri Keflavíkur gegn botnliði Þórs var heldur ekki af verri endanum! Þau mörk er einnig hægt að sjá hér að neðan.
Árni Marinó Einarsson átti mjög góðan leik í marki Skagamanna og Ásgeir Páll Magnússon var mjög öflugur fyrir Keflavík fyrir norðan og eru einnig í liði umferðarinnar.
Valur og KA gerðu 4-4 jafntefli í rosalegum leik. Jakob Snær Árnason var valinn maður leiksins en hann skoraði tvö fyrir Akureyrarliðið. Hólmar Örn Eyjólfsson var meðal markaskorara Vals. Ekki er pláss fyrir Hallgrím Mar Steingrímsson eða Patrick Pedersen þó þeir hafi skorað tvö mörk hvor.
Róbert Hauksson skoraði tvö fyrir Fram og var maður leiksins í 2-1 sigri gegn Stjörnunni. Öll þrjú mörk hans á tímabilinu hafa komið gegn Garðbæingum, hans fyrrum félagi. Rúnar Kristinsson er þjálfari umferðarinnar en Fram sýndi faglega og flotta frammistöðu.
Þá er Kristófer Ingi Kristinsson í liðinu en hann skoraði tvö mörk og var valinn maður leiksins í 3-3 jafntefli Breiðabliks gegn KR. Kristófer er kominn í gang eftir meiðsli en hans var sárt saknað í Kópavoginum á meðan hann var fjarverandi.
Gylfi Þór kom Víkingum yfir með frábæru marki! ?????????? #bestadeildin pic.twitter.com/tuf7jtFLD4
— Besta deildin (@bestadeildin) August 16, 2026
Haukur Andri Haraldsson! ???????????? #bestadeildin pic.twitter.com/uYbHgBR8aP
— Besta deildin (@bestadeildin) August 16, 2026
Eiður Orri gegn Þór! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/oTrz8mTbIg
— Besta deildin (@bestadeildin) August 16, 2026
Jakob Snær gegn Val! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/tj0vO1VgBq
— Besta deildin (@bestadeildin) August 17, 2026
Róbert Hauksson gegn Stjörnunni! ???? #bestadeildin pic.twitter.com/hYvujgT7QW
— Besta deildin (@bestadeildin) August 17, 2026
Breiðablik skoraði þrjú í fyrri hálfleik gegn Vesturbæingum! ?????? #bestadeildin pic.twitter.com/DVsUr24USg
— Besta deildin (@bestadeildin) August 16, 2026
Fyrri úrvalslið:

Sterkasta lið 18. umferðar - Hausinn ekki mættur á Akranes

Sterkasta lið 17. umferðar - Freyr bestur á Þjóðhátíð

Sterkasta lið 16. umferðar - Markús Páll stóð upp úr í stórsigri

Sterkasta lið 15. umferðar - Gyrðir og Aron beint í liðið

Sterkasta lið 14. umferðar - Jói Kalli þjálfari umferðarinnar

Sterkasta lið 13. umferðar - Eyjamenn á hörkusiglingu

Sterkasta lið 12. umferðar - Kyssti merkið

Sterkasta lið 11. umferðar - Sjö úr stórkostlegri frammistöðu Víkings

Sterkasta lið 10. umferðar - Gylfi veitti áritanir

Sterkasta lið 8. umferðar - Vatnhamar í fimmta sinn

Sterkasta lið 7. umferðar - Nýja stjarnan heldur áfram að skína

Sterkasta lið 6. umferðar - Galið og óhemju sókndjarft

Sterkasta lið 5. umferðar - Vatnhamarinn í þriðja sinn

Sterkasta lið 4. umferðar - Aron kominn með fast sæti

Sterkasta lið 3. umferðar - KR í draumaferð til Eyja

Sterkasta lið 2. umferðar - Krummi stórkostlegur

Sterkasta lið 1. umferðar - Sautján ára á miðjunni með Gylfa

Eiður Orri gerði góða ferð norður.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skoraði magnað mark í Eyjum - „Síðan bara tók ég á rás, held ég hafi sólað þrjá og setti hann í þaknetið"

Eiður Orri: Draumamark sem kveikti á manni

„Auðvitað geta þeir verið saman inn á"

Sterkastur í 19. umferð - Besta liðið styrkti stöðu sína
Innkastið - Rokk og ról í Vesturbæ
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 19 | +44 | 48 |
| 2 | KR | 19 | +25 | 40 |
| 3 | Fram | 19 | +13 | 40 |
| 4 | Breiðablik | 19 | +6 | 30 |
| 5 | ÍA | 19 | -4 | 25 |
| 6 | Keflavík | 19 | -4 | 25 |
| 7 | Valur | 19 | -5 | 23 |
| 8 | Stjarnan | 19 | -12 | 21 |
| 9 | ÍBV | 19 | -11 | 17 |
| 10 | FH | 19 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 19 | -12 | 16 |
| 12 | Þór | 19 | -28 | 15 |

