fös 26.apr 2024 18:00 Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 7. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Leiknismönnum er kannski nokkuð óvænt spáð sjöunda sæti.
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. Leiknir R., 143 stig
8. Þróttur R., 87 stig
9. Grótta, 83 stig
10. Njarðvík, 68 stig
11. ÍR, 66 stig
12. Dalvík/Reynir, 23 stig
7. Leiknir R.
Leiknismenn sneru aftur í Lengjudeildina í fyrra eftir að hafa leikið í Bestu deildinni árin 2021 og 2022. Síðasta tímabil var svo sannarlega áhugavert þar sem Breiðhyltingar byrjuðu ekki vel og það munaði litlu að það yrðu þjálfaraskipti, en Leiknisliðið náði að þjappa sér vel saman og komst að lokum í úrslitakeppnina. Þar var Afturelding aðeins of stór biti en að lokum var tímabilið klárlega grundvöllur til að byggja á fyrir framhaldið. Leikni er spáð sjöunda sæti en en fólk í efra Breiðholtinu yrði svo sannarlega ekki sátt ef það yrði niðurstaðan í sumar.
Þjálfarinn: Vigfús Arnar Jósefsson tók við Leikni fyrir síðasta tímabil eftir að Sigurður Heiðar Höskuldsson hætti með liðið. Fúsi vill að liðið sitt spili boltanum með fram jörðinni og er Barcelona hans uppáhaldsfélag í Evrópuboltanum. Hann var aðalþjálfari Leiknis 2018, er uppalinn hjá félaginu og þekkir hvern krók og kima í efra Breiðholtinu. Hann gerði gríðarlega vel í því að koma til baka úr erfiðri stöðu í fyrra en um mitt sumar var honum tilkynnt að hann yrði rekinn ef ekki færi vel gegn Ægi á heimavelli. Það var erfiður leikur en liðið vann að lokum og komst á gott skrið eftir það. Fúsi hélt starfinu og kom Leikni í úrslitakeppnina.
Baldvin Már Borgarsson, þjálfari Árbæjar, er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann fer yfir liðin; þeirra styrkleika, veikleika og fleira. Í fyrra var hann aðstoðarþjálfari Ægis í Lengjudeildinni og þekkir hann því hana býsna vel.
Baldvin Már Borgarsson.
Styrkleikar: Að fara inn í annað ár spilandi skemmtilegan bolta undir Fúsa og Donna. Ég hef mikla trú á þessu verkefni og finnst Leiknir með gott lið. Eiga alltaf að geta skorað mörk með einn besta senterinn í deildinni.
Veikleikar: Hafa verið að leka full mörgum mörkum en það er ákveðinn fórnarkostnaður við djarfan leikstíl á meðan þeir mastera hann.
Lykilmenn:
Daði Bærings Halldórsson - Leiðtoginn, virkilega öflugur varnarlega hvort sem hann spilar hafsent eða miðju, flottur á boltann og ber uppi unga og spræka liðsfélaga á herðunum.
Sindri Björnsson - Einn besti miðjumaður deildarinnar, vinnsla upp og niður völlinn, kannski best að orða þetta bara “gæði og fleira”.
Omar Sowe - Einn af tveimur bestu framherjum deildarinnar myndi ég segja blákalt framan í aðra framherja deildarinnar, að maðurinn sé ekki að spila í Bestu deildinni er guðs gjöf til Leiknismanna.
Fylgist með: Róbert Quental, 19 ára örvfættur kantmaður með mikla tækni, hraða og sprengikraft, kom virkilega vel inn í lið Leiknis í fyrra og ég væntist þess að hann taki mikið til sín í sumar.
Komnir:
Aron Einarsson frá Selfossi
Arnór Daði Aðalsteinsson frá Fram
Arnór Ingi Kristinsson alfarið frá Val (var á láni)
Sigurður Gunnar Jónsson á láni frá Stjörnunni
Þorsteinn Emil Jónsson frá Val
Farnir:
Árni Elvar Árnason í Þór
Valgeir Árni Svansson í Aftureldingu
Daníel Finns Matthíasson í Stjörnuna (var á láni)
Indrit Hoti í Ými (var á láni frá Haukum)
Dómur Badda fyrir gluggann: 6
Ekki miklar hreyfingar þannig, taka inn Aron Einars og Sigga Gunn sem eru mjög flottir leikmenn, Leiknisliðið er á flottum stað.
Fyrstu þrír leikir Leiknis:
3. maí, Leiknir R. - Njarðvík (Domusnovavöllurinn)
10. maí, Fjölnir - Leiknir R. (Egilshöll)
18. maí, Leiknir R. - ÍR (Domusnovavöllurinn)
Í besta og versta falli að mati Badda: Í besta falli enda þeir á toppnum og í versta falli enda þeir í sjötta sæti (já þessi spá þjálfara og fyrirliða er galin!).

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð