Fotbolti.net
31.01.23 - 20:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Shelvey kvaddi stuðningsmenn Newcastle í hálfleik

Shelvey kvaddi stuðningsmenn Newcastle í hálfleik
Canon

Mynd: Getty Images

Jonjo Shelvey er að ganga til liðs við Nottingham Forest frá Newcastle fyrir gluggalok en hann kvaddi leikmenn og stuðningsmenn Newcastle í kvöld.

Newcastle er þessa stundina að spila síðari leikinn gegn Southampton í undanúrslitum enska deildabikarsins en staðan er 2-1 Newcastle í vil í hálfleik. Samanlegt 3-1.

Shelvey fylgist með leiknum úr stúkunni en hann mætti á völlinn í hálfleik og kvaddi stuðningsmenn liðsins og tók í höndina á nokkrum varamönnum Newcastle sem voru að hita upp á vellinum.

Hann er þrítugur miðjumaður og hefur verið hjá Newcastle í sjö ár. Áður lék hann með Charlton, Liverpool, Blackpool og Swansea. Hann mun að öllum líkindum fara til Forest á frjálsri sölu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.