Fotbolti.net
06.02.26 - 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Baddi Borgars spáir í 25. umferð ensku úrvalsdeildarinnar

Baldvin Már Borgarsson.

Baldvin Már Borgarsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elliði Snær Viðarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, gerði sér lítið fyrir og var með sex rétta þegar hann spáði í síðustu umferð ensku úrvalsdeildarinnar.

Næsta umferð hefst í kvöld og Baldvin Már Borgarsson, fótboltaþjálfari og hlaðvarpsstjórnandi, spáir í leikina að þessu sinni. Baldvin stýrir Kjaftæðinu sem má finna á hlaðvarpsrásum Fótbolta.net.
Leeds 2 - 1 Nottingham Forest (20:00 í kvöld)
Heimamenn sterkir á Elland Road og hlaupa yfir Dyche-aða Forest menn,

Man Utd 3 - 1 Tottenham (12:30 á morgun)
Með Hristján Óla, KingMike, Birki Heppna og JustTom í stúkunni gerast galdrar á Old Trafford, því miður.

Bournemouth 2 - 2 Aston Villa (15:00 á morgun)
Heimamenn eru vaknaðir af værum blundi um mitt mót, taka stig gegn sterku Villa liði.

Arsenal 1 - 2 Sunderland (15:00 á morgun)
Það var einhver snillingur í Arsenalsamfélaginu á Íslandi sem tilkynnti það að hafa vaknað upp við þá martröð eins og hann kallaði það að leikurinn færi svona, ég trúi á drauma og spái því svona.

Burnley 1 - 0 West Ham (15:00 á morgun)
Ég vona það eingöngu fyrir landsins snjallasta Gosa að hans uppáhalds lið vinni fótboltaleik þessa helgina.

Fulham 2 - 0 Everton (15:00 á morgun)
Marco Silva tekur sitt fyrrum skítafélag í leikfræðilega kennslustund á Craven Cottage, sorry Styrmir Erlends.

Wolves 0 - 3 Chelsea (15:00 á morgun)
Úlfarnir eru búnir að leggja allar árar í bát og komnir með hausinn á Championship á næsta tímabili.

Newcastle 3 - 2 Brentford (17:30 á morgun)
Tvö skemmtileg lið spila skemmtilegan leik, St. James er önnur skepna.

Brighton 2 - 1 Crystal Palace (14:00 á sunnudag)
Heimamenn klára þennan leik fuglanna, verð ólíklega límdur yfir þessum.

Liverpool 4 - 0 Man City (16:30 á sunnudag)
Göngubolti Slot svæfir City svo harkalega að eftir 60 verða þeir ekki með af syfju, Wirtz, Ekitike og Szobo með sýningu!

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Nær Man Utd að halda áfram sigurgöngu sinni undir stjórn Michael Carrick?

Nær Man Utd að halda áfram sigurgöngu sinni undir stjórn Michael Carrick?

Canon

Mynd: EPA

Sunderland hefur komið mikið á óvart í vetur.

Sunderland hefur komið mikið á óvart í vetur.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool mætir Manchester City í stórleik helgarinnar.

Liverpool mætir Manchester City í stórleik helgarinnar.

Canon

Mynd: EPA

Kjaftæðið - Víkingar að kaupa leikmann og stór helgi fyrir Arsenal

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Brighton1+43
2Arsenal1+33
3Brentford1+33
4Everton1+23
5Hull City1+23
6Man City1+13
7Ipswich Town1+13
8Leeds1+13
9Chelsea1+13
10Liverpool101
11Newcastle101
12Fulham1-10
13Sunderland1-10
14Bournemouth1-10
15Nott. Forest1-10
16Man Utd1-20
17Crystal Palace1-20
18West Ham38-1939
18Tottenham1-30
19Coventry1-30
19Burnley38-3722
20Wolves38-4120
20Aston Villa1-40
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.