Fundað um Pochettino - Man City tryggir sér undrabarn - Arsenal ætlar að styrkja hópinn
   mið 04. mars 2020 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England í dag - City, Spurs og Leicester keppa í bikarnum
Mynd: Getty Images
Þrír leikir fara fram í 16-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld og er hægt að fylgjast með þeim öllum í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og aukastöðvum.

Sheffield Wednesday tekur á móti Manchester City sem vann deildabikarinn þriðja árið í röð með sigri gegn Aston Villa um helgina.

Á sama tíma eiga lærisveinar Jose Mourinho í Tottenham heimaleik gegn Norwich, botnliði ensku úrvalsdeildarinnar. Leicester tekur þá á móti Birmingham.

Sigurvegarar kvöldsins komast í 8-liða úrslitin ásamt Arsenal, Chelsea, Sheffield United og Newcastle sem unnu leiki sína í gær og fyrradag.

Derby County tekur svo á móti Manchester United annað kvöld.

Leikir kvöldsins:
19:45 Sheffield Wed - Man City (Stöð 2 Sport)
19:45 Tottenham - Norwich (Stöð 2 Sport 2)
19:45 Leicester - Birmingham (Stöð 2 Sport 3)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner