Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   fim 09. maí 2024 14:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mourinho: Son er einn besti fótboltamaður heims
Mynd: Getty Images

Jose Mourinho fyrrum stjóri Tottenham hrósaði fyrrum félaga sínum, Heung-Min Son, í hástert.


Son og Harry Kane mynduðu frábært teymi með Tottenham áður en Kane gekk til liðs við Bayern en þeim mistókst að vinna titil með liðinu.

Mourinho gaf í skyn að Son þyrfti að fara frá Tottenhamtil að vinna titil.

„Ég sé Son sem einn besta fótboltamann í heimi. Kannski verða stuðningsmenn Tottenham ekki sáttir með það sem ég ætla að segja, það er ekki vanvirðing. Hann gæti unnið titla, hann gæti spilað fyrir bestu liðin," sagði Mourinho.

„Hann gæti spilað fyrir Man City, Liverpool eða Chelsea á Englandi. Hann gæti líka spilað fyrir eitt af stórliðunum fyrir utan Englands. Hann hefur hreyfigetu nútíma sóknarmanna. Hann getur spilað í gegnum miðjuna og á köntunum."


Athugasemdir
banner
banner