Tottenham Hotspur hefur áhuga á því að fá spænska sóknartengiliðinn Dani Olmo frá RB Leipzig í sumar en það er þýska blaðið BILD sem segir frá þessu.
Olmo er 26 ára gamall og alinn upp í La Masia-akademíunni hjá Barcelona.
Hann fór þaðan til Dinamo Zagreb í Króatíu og spilaði frábærlega með liðinu áður en Leipzig keypti hann fyrir fjórum árum.
Þar hefur hann gegnt mikilvægu hlutverki og komið að 65 mörkum í 148 leikjum.
Samkvæmt BILD er Tottenham áhugasamt um að fá Olmo sem er með 60 milljóna evra kaupákvæði í samningi sínum.
Ange Postecoglou, stjóri Tottenham, ætlar að styrkja hópinn í sumar og hefur talað opinskátt um það. Olmo gæti verið maðurinn sem ástralski stjórinn er að leita að.
Athugasemdir