Hinn 17 ára gamli Pau Cubarsi, miðvörður Barcelona, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Samningurinn gildir út tímabilið 2026-2027.
Cubarsi hefur unnið sér sæti í liðinu en hann hefur verið fastamaður seinni hluta tímabilsins.
Hann skrifaði undir samning við félagið á síðasta ári sem hefði runnið út árið 2026 en í honum var 10 milljón evra riftunarákvæði. Í nýja samningnum er 500 milljón evra riftunarákvæði
Talið er að hann muni skrifa undir lengri samning um leið og hann nær 18 ára aldri í janúar á næsta ári.
Athugasemdir