Baleba fer ekki til Man Utd í sumar - Newcastle enn í framherjaleit - Ederson til Galatasaray?
banner
laugardagur 16. ágúst
Mjólkurbikar kvenna
fimmtudagur 14. ágúst
Besta-deild kvenna
Forkeppni Evrópudeildarinnar
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
mánudagur 11. ágúst
Besta-deild karla
laugardagur 9. ágúst
Lengjudeild karla
Besta-deild kvenna
miðvikudagur 6. ágúst
Besta-deild karla
mánudagur 4. ágúst
Besta-deild kvenna
laugardagur 2. ágúst
miðvikudagur 30. júlí
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Meistaradeildarinnar
Lengjudeild karla
mánudagur 28. júlí
Besta-deild karla
laugardagur 26. júlí
2. deild karla
Besta-deild karla
Lengjudeild karla
fimmtudagur 24. júlí
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Besta-deild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
Forkeppni Sambandsdeildarinnar
miðvikudagur 23. júlí
þriðjudagur 22. júlí
Forkeppni Meistaradeildarinnar
sunnudagur 20. júlí
Besta-deild karla
sunnudagur 17. ágúst
Championship
Hull City - Oxford United - 14:00
Ipswich Town - Southampton - 11:00
Úrvalsdeildin
Nott. Forest - Brentford - 13:00
Chelsea - Crystal Palace - 13:00
Man Utd - Arsenal - 15:30
Bikarkeppni
Engers 07 - Eintracht Frankfurt - 11:00
Viktoria Koln - Paderborn - 11:00
Atlas Delmenhorst - Gladbach - 13:30
BW Lohne - Greuther Furth - 13:30
Lokomotive Leipzig - Schalke 04 - 13:30
ZFC Meuselwitz - Karlsruher - 13:30
Regensburg - Köln - 13:30
RSV Eintracht - Kaiserslautern - 13:30
Homburg - Holstein Kiel - 16:00
Hallescher FC - Augsburg - 16:00
Ulm - Elversberg - 16:00
WORLD: International Friendlies
Katar - Qatar U-23 - 15:30
Bikarkeppni
Monza - Frosinone - 16:00
Parma - Pescara - 16:30
Cesena - Pisa - 18:45
Milan - Bari - 19:15
Eliteserien
Ham-Kam - Bryne - 15:00
KFUM Oslo - Molde - 15:00
Kristiansund - Sandefjord - 15:00
Tromso - SK Brann - 12:30
Valerenga - Sarpsborg - 17:15
Úrvalsdeildin
Akron - Orenburg - 10:30
FK Krasnodar - Sochi - 17:30
Rubin - Rostov - 12:45
Dinamo - CSKA - 15:00
La Liga
Celta - Getafe - 15:00
Athletic - Sevilla - 17:30
Espanyol - Atletico Madrid - 19:30
Damallsvenskan - Women
Djurgarden W - Vittsjo W - 12:00
Norrkoping W - Linkoping W - 11:00
Malmo FF W - AIK W - 14:00
Vaxjo W - Hacken W - 12:00
Elitettan - Women
Eskilstuna United W - Hacken-2 W - 14:00
lau 06.apr 2024 10:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá Fótbolta.net - 1. sæti: Valur

Sérfræðingar Fótbolta.net spá því að Valur muni standa uppi sem sigurvegari Bestu deildarinnar í sumar. Álitsgjafar spá í deildina en þeir raða liðunum upp í röð og það lið sem er í efsta sæti fær 12 stig, annað sæti 11 og svo koll af kolli niður í tólfta sæti sem gefur eitt stig. Valsmenn enduðu í efsta sæti í spánni.

Valsmönnum er spáð titlinum.
Valsmönnum er spáð titlinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Grétarsson stýrir liðinu.
Arnar Grétarsson stýrir liðinu.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gylfi spilar með Val í sumar.
Gylfi spilar með Val í sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Jóhannsson er frábær leikmaður.
Aron Jóhannsson er frábær leikmaður.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vi har Pedersen!
Vi har Pedersen!
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Púslið sem vantaði.
Púslið sem vantaði.
Mynd/Valur
Birkir Már Sævarsson, ótrúlegur náungi.
Birkir Már Sævarsson, ótrúlegur náungi.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmönnum er spáð titlinum.
Valsmönnum er spáð titlinum.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. Valur, 139 stig
2. Víkingur R., 135 stig
3. Stjarnan, 111 stig
4. Breiðablik, 109 stig
5. KR, 104 stig
6. FH, 81 stig
7. KA, 66 stig
8. Fram, 60 stig
9. ÍA, 59 stig
10. Vestri, 34 stig
11. Fylkir, 24 stig
12. HK, 14 stig

Um liðið: Valsmenn eru búnir að fá nóg af því að vinna ekki titilinn. Síðasti Íslandsmeistaratitill hjá karlaliðinu kom árið 2020 en breytist það í ár? Valur sendi frá sér risastóra yfirlýsingu er þeir sóttu Gylfa Þór Sigurðsson, sem er besti landsliðsmaður sem Ísland hefur nokkurn tímann átt. Að Gylfi sé að fara í Bestu deildinni er ótrúlegt og það verður mörg augu á Valsliðinu. Pressan er svo sannarlega til staðar og nú er það að duga eða að drepast.

Þjálfarinn: Arnar Grétarsson er á leið inn í sitt annað tímabil sem þjálfari Vals. Árangurinn í fyrra var ásættanlegur en ekki frábær. Nú er krafa á titla. Arnar er með mikla reynslu en eftir að farsælum leikmannaferli lauk, þá var hann yfirmaður fótboltamála hjá AEK í Grikklandi og Club Brugge í Belgíu. Þjálfaraferill Arnars hófst hjá Breiðabliki og síðar tók hann við liði Roeselare í Belgíu áður en hann tók við stjórnartaumum hjá KA þar sem hann skilaði góðu starfi. Hann tók svo við Val fyrir síðustu leiktíð.

Fótbolti.net fær sérfræðingana Einar Guðnason og Harald Árna Hróðmarsson til að rýna í styrkleika, veikleika og annað hjá liðunum sem spila í Bestu deildinni í sumar. Haraldur, sem er fyrrum aðstoðarþjálfari Vals og ÍA, fer yfir það helsta hjá liðinu sem er spáð toppsætinu.

Styrkleikar: Valur er á pappír eitt best mannaða lið sögunnar. Ferilskrár leikmanna og fjöldi landsleikja í hópnum eru svakaleg lesning og nöfnin sem sitja á bekknum eða utan hóps væru lykilmenn í langflestum liðum deildarinnar. Þegar Valur er með boltann eru litlar líkur á að þú fáir hann aftur nema til að taka markspyrnu eða miðju. Það er mikið hungur á Hlíðarenda og þeir ætla sér Íslandsmeistaratitilinn.

Veikleikar: Valsmenn eru með gamalt lið og getubilið milli bestu leikmanna liðsins og þeirra sem koma inn af bekknum er mjög stórt. Varnarleikur liðsins er ekki á pari við sóknarleikinn, þeir vinna boltann ekki nógu oft framarlega á vellinum og jafnvægið á liðinu þegar boltinn tapast er veikleiki.

Lykilmenn: Aron Jóhannsson er með leikskilning og tækni sem á heima á stærra sviði en Bestu deildinni. Hann stýrir hraðanum í leikjum og verður þeirra aðalmaður. Patrick Pedersen er heill eftir tvö erfið tímabil og hann er lang besti framherji deildarinnar þegar hann er heill. 128 mörk í 205 leikjum fyrir Val ef einhver vill þræta við mig um það. Hólmar Eyjólfsson er fyrirliðinn og besti varnarmaður Vals. Hann þarf að eiga topp tímabil í ár og gera menn í kringum sig betri.

Leikmaður sem á að fylgjast með: Gylfi Sigurðsson er mest spennandi nýliði í deildinni sem ég man eftir. Hann var eðlilega ryðgaður gegn ÍA og Víking en ef Gylfi nær sér á strik þarf stórslys til að Valur vinni ekki titilinn.

Komnir:
Gylfi Þór Sigurðsson frá Lyngby
Jónatan Ingi Jónsson frá Sogndal
Bjarni Mark Duffield frá Start
Bjarni Guðjón Brynjólfsson frá Þór
Gísli Laxdal Unnarsson frá ÍA
Jakob Franz Pálsson frá Venezia
Stefán Þór Ágústsson frá Selfossi
Ólafur Flóki Stephensen frá Grindavík (var á láni)

Farnir:
Hlynur Freyr Karlsson til Haugesund
Andri Rúnar Bjarnason í Vestra
Birkir Heimisson í Þór
Orri Hrafn Kjartansson á láni í Fylki
Haukur Páll Sigurðsson orðinn aðstoðarþjálfari
Sveinn Sigurður Jóhannesson
Guy Smit til KR (var á láni hjá ÍBV)

Dómur Haraldar fyrir gluggann: Glugginn hjá Val var eiginlega fáránlegur. Hlynur Freyr fór eðlilega út eftir geggjað tímabil í fyrra og Andri Rúnar fór í Vestra en það var aðeins óvæntara þegar Birkir Heimis fór heim í 603. Haukur Páll fór sem betur fer ekki langt en hans hlutverk innan vallar var ekki stórt í fyrra. Bjarni Mark, Gylfi og Jónatan styrkja liðið gríðarlega og Gísli og Jakob efla breiddina. Fá 9/10.

Leikmannalisti:
1. Frederik A. Schram (m)
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Elfar Freyr Helgason
6. Bjarni Mark Duffield
7. Aron Jóhannsson
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
14. Guðmundur Andri Tryggvason
15. Hólmar Örn Eyjólfsson
16. Gísli Laxdal Unnarsson
17. Lúkas Logi Heimisson
18. Þorsteinn Emil Jónsson
20. Orri Sigurður Ómarsson
21. Jakob Franz Pálsson
22. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
23. Gylfi Þór Sigurðsson
24. Adam Ægir Pálsson



Fyrstu fimm leikir Vals:
7. apríl, Valur - ÍA (N1-völlurinn - Hlíðarenda)
14. apríl, Fylkir - Valur (Würth völlurinn)
19. apríl, Stjarnan - Valur (Samsungvöllurinn)
29. apríl, Valur - Fram (N1-völlurinn Hlíðarenda)
6. maí, Breiðablik - Valur (Kópavogsvöllur)

Í besta og versta falli: Í besta falli verður Valur Íslandsmeistari. Í versta falli mun hvert jafntefli, tap eða "slæm" frammistaða í sigrum verða tilefni til gagnrýni. Pressan á liðinu verður meiri en nokkru sinni fyrr og allt annað en 1. sæti verða vonbrigði.

Spámennirnir: Aksentije Milisic, Anton Freyr Jónsson, Arnar Laufdal, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Haraldur Örn Haraldsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Stefán Marteinn Ólafsson, Sverrir Örn Einarsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke, Tómas Þór Þórðarson og Valur Gunnarsson.
Athugasemdir