06.09.26 - 12:10
Fótbolti.net
Lið og leikmaður 22. umferðar - Í fallsæti frá þriðju umferð en héldu sér

Elvar Baldvinsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

ÍR vann Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindvíkingar féllu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Elvar Baldvinsson er leikmaður umferðarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Völsungur frá Húsavík náði að framkvæma magnaða björgun í lokaumferð Lengjudeildarinnar en liðið vann 2-0 útisigur gegn Gróttu og komust í fyrsta sinn upp úr fallsæti á tímabilinu.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Elvar Baldvinsson - Völsungur
Vörnin var ótrúlega þétt. Elvar henti sér í allar tæklingarnar og skoraði svo annað markið, sem var vel gert. Grótta fékk engin almennileg færi þar sem vörn Völsungs gaf þeim lítið sem ekkert svæði til að athafna sig.
LEIKMAÐUR UMFERÐARINNAR
Elvar Baldvinsson - Völsungur
Vörnin var ótrúlega þétt. Elvar henti sér í allar tæklingarnar og skoraði svo annað markið, sem var vel gert. Grótta fékk engin almennileg færi þar sem vörn Völsungs gaf þeim lítið sem ekkert svæði til að athafna sig.

TENGT EFNI
Þetta eru leiktímarnir í Lengjudeildarumspilinu
Alvöru great escape hjá Völsungi
— Ingvi Þór Sæmundsson (@ingvithors) September 5, 2026
Fyrstu 16 leikirnir: 2 sigrar, 11 stig
Síðustu 6 leikirnir: 5 sigrar, 15 stig
Voru í fallsæti frá 3. umferð til 21. umferðar
Spánverjinn Borja Iglesias er þjálfari umferðarinnar og þá eru þeir Victor Mendez og Fernando Jimenez Arranz í liði umferðarinnar.

Það var hlutskipti Grindvíkinga að falla en þeir gerðu aðeins jafntefli gegn föllnum Ægismönnum í Þorlákshöfn. Daníel Karl Þrastarson skoraði mark Ægis og var valinn maður leiksins.
ÍR-ingar héldu sér í deildinni en þeir unnu grannaslaginn gegn Leiknismönnum. Emil Nói Sigurhjartarson og Bergvin Fannar Helgason skoruðu báðir í 3-2 sigri.
Þróttur endaði í öðru sæti með 2-0 sigri gegn Vestra á Ísafirði. Örn Bragi Hinriksson var með mark og stoðsendingu.
Þróttur mun mæta Njarðvík í undanúrslitum umspilsins en Njarðvíkingar unnu Aftureldingu 2-1. Viktor Nói Viðarsson skoraði laglegt mark og var valinn maður leiksins. Arnleifur Hjörleifsson var flottur í bakverðinum.
HK vann Fylki 2-1 og liðin munu svo mætast aftur í umspilinu. Dominik Radic skoraði og var besti maður vallarins. Jóhann Þór Arnarsson er einnig í liði umferðarinnar.
Fyrri úrvalslið:
21. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
20. umferð - Ólafur Örn Ásgeirsson - HK
19. umferð - Bergvin Fannar Helgason - ÍR
18. umferð - Valdimar Jóhannsson - Njarðvík
17. umferð - Birnir Breki Burknason - Leiknir
16. umferð - Aron Snær Ingason - Þróttur
15. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
14. umferð - Birkir Eyþórsson - Fylkir
13. umferð - Óðinn Bjarkason - Afturelding
12. umferð - Andri Freyr Jónasson - Grótta
11. umferð - Birkir Már Sævarsson - Afturelding
10. umferð - Edson - Vestri
9. umferð - Elfar Árni Aðalsteinsson - Völsungur
8. umferð - Sigurður Egill Lárusson - Þróttur
7. umferð - Andi Hoti - Afturelding
6. umferð - Jordan Adeyemo - Ægir
5. umferð - Mattías Kjeld - Grótta
4. umferð - Svavar Örn Þórðarson - HK
3. umferð - Ibrahima Balde - Vestri
2. umferð - Kári Sigfússon - Fylkir
1. umferð - Stefán Þór Pálsson - ÍR

ÍR vann Leikni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindvíkingar féllu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

TENGT EFNI
Gunnar Heiðar: Besti maðurinn í þessari deild í sumar

TENGT EFNI
„Ég kom þegar liðið var aðeins með tvö stig og á botninum, en við enduðum með 26 stig"
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |
