Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   lau 07. nóvember 2020 18:12
Ívan Guðjón Baldursson
Hvíta-Rússland: Willum lék allan toppslaginn - Sex stig í titilinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Shakhtyor Soligorsk 1 - 1 BATE Borisov
0-1 Pavel Nekhajchik ('25)
1-1 Roman Begunov ('81)

Willum Þór Willumsson lék allan tímann er BATE Borisov heimsótti Shakhtyor Soligorsk í toppslagi hvítrússneska boltans.

BATE átti flottan fyrri hálfleik og leiddi í leikhlé þökk sé marki frá Pavel Nekhajchik.

Heimamenn í Shakhtyor tóku völdin í síðari hálfleik og varðist BATE vel allt þar til undir lokin þegar Roman Begunov náði að gera jöfnunarmark.

Meira var ekki skorað og er BATE á toppi deildarinnar með 54 stig, einu stigi meira en Shakhtyor þegar aðeins tvær umferðir eru eftir.

BATE getur því tryggt sér titilinn þar í landi með sigrum í síðustu tveimur umferðum tímabilsins.
Athugasemdir
banner
banner