Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
banner
   lau 15. september 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Stórleikur á Wembley
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Fimmta umferð ensku úrvalsdeildarinnar verður leikin um helgina og hefst hún í dag, á stórleik Tottenham og Liverpool á Wembley.

Bæði lið byrjuðu tímabilið vel en það kom smá babb í bátinn hjá Tottenham í síðustu umferð þegar liðið tapaði fyrir Watford, 2-1.

Dele Alli, Victor Janssen og Hugo Lloris eru á meiðslalista Spurs og eru Dejan Lovren og Alex Oxlade-Chamberlain meiddir hjá
Liverpool. Adam Lallana, Erik Lamela og Moussa Sissoko eru tæpir.

Arsenal heimsækir Rafa Benitez og lærisveina hans til Newcastle síðar í dag. Bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar fyrstu vikurnar en Newcastle er þegar búið að spila við Manchester City, Chelsea og Tottenham á tímabilinu.

Þá á Chelsea heimaleik gegn Cardiff og Man City tekur á móti Fulham áður en Man Utd heimsækir Watford í stórleik. Stórliðin spila öll í dag vegna Evrópukeppna.

Wolves fær Burnley í heimsókn á morgun og mætir Gylfi Þór Sigurðsson til leiks með Everton gegn West Ham, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Southampton fær Brighton í heimsókn í síðasta leik umferðarinnar á mánudagskvöldið.

Laugardagur:
11:30 Tottenham - Liverpool (Stöð 2 Sport)
14:00 Newcastle - Arsenal (Stöð 2 Sport)
14:00 Chelsea - Cardiff
14:00 Man City - Fulham
14:00 Huddersfield - Crystal Palace
14:00 Bournemouth - Leicester
16:30 Watford - Man Utd (Stöð 2 Sport)

Sunnudagur:
12:30 Wolves - Burnley (Stöð 2 Sport)
15:00 Everton - West Ham (Stöð 2 Sport)

Mánudagur:
19:00 Southampton - Brighton (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 36 26 5 5 88 28 +60 83
2 Man City 35 25 7 3 87 33 +54 82
3 Liverpool 36 23 9 4 81 38 +43 78
4 Aston Villa 36 20 7 9 73 53 +20 67
5 Tottenham 35 18 6 11 69 58 +11 60
6 Newcastle 35 17 5 13 78 56 +22 56
7 Chelsea 35 15 9 11 70 59 +11 54
8 Man Utd 35 16 6 13 52 55 -3 54
9 West Ham 36 13 10 13 56 70 -14 49
10 Bournemouth 36 13 9 14 52 63 -11 48
11 Brighton 35 12 11 12 53 57 -4 47
12 Wolves 36 13 7 16 49 60 -11 46
13 Fulham 36 12 8 16 51 55 -4 44
14 Crystal Palace 36 11 10 15 49 57 -8 43
15 Everton 36 12 9 15 38 49 -11 37
16 Brentford 36 9 9 18 52 60 -8 36
17 Nott. Forest 36 8 9 19 45 63 -18 29
18 Luton 36 6 8 22 49 78 -29 26
19 Burnley 36 5 9 22 39 74 -35 24
20 Sheffield Utd 36 3 7 26 35 100 -65 16
Athugasemdir
banner
banner
banner