Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fös 27. febrúar 2026 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ívar Örn spáir í 28. umferð ensku úrvalsdeildarinnar
Ívar Örn Árnason var á dögunum keyptur til Breiðabliks.
Ívar Örn Árnason var á dögunum keyptur til Breiðabliks.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Ívar spáir mörkum frá Salah.
Ívar spáir mörkum frá Salah.
Mynd: EPA
Tottenham er í veseni.
Tottenham er í veseni.
Mynd: EPA
Arsenal mætir Chelsea í stórleik.
Arsenal mætir Chelsea í stórleik.
Mynd: EPA
Næsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar hefst í kvöld. Ívar Örn Árnason, nýr leikmaður Breiðabliks, tók að sér það verkefni að spá í leikina sem framundan eru.

Wolves 2 - 1 Aston Villa (20:00 í kvöld)
Villa blaðran er sprungin, Armstrong kemur Wolves yfir áður en Rogers jafnar. Rautt spjald skemmir fyrir Villa og undrabarnið Mane klárar þetta fyrir Wolves.

Bournemouth 2 - 0 Sunderland (12:30 á morgun)
Suðurströndin tekur þennan, verður ekki mikið fyrir augað, mark í sitthvorum hálfleik og Bournemouth sigla þessu heim.

Burnley 0 - 3 Brentford (15:00 á morgun)
Léttleikandi Brentford klára þennan nokkuð auðveldlega. Thiago verður í stuði og setur amk tvö.

Liverpool 3 - 1 West Ham (15:00 á morgun)
Salah er vaknaður og skorar tvö, nýi besti vinur hans Kerkez setur svo þriðja áður en West Ham ná inn einu sárabóta. Liverpool vaknaðir og ná topp 4.

Newcastle 3 - 0 Everton (15:00 á morgun)
Pökkun af gamla skólanum. Gordon í revenge mode og Newcastle klára þetta þægilega.

Leeds 2 - 3 Man City (17:30 á morgun)
Leeds verða seigir og komast 2x yfir en Haaland þrenna klárar þetta fyrir City.

Brighton 0 - 1 Nottingham Forest (14:00 á sunnudag)
Leiðinlegasti leikurinn í umferðinni. Forest fá heppnina með sér núna og klára þetta í lok leiks. Neco Williams klárar þetta.

Fulham 2 - 0 Tottenham (14:00 á sunnudag)
Spurs er versta liðið í deildinni þessa stundina. Harry Wilson verður með stórleik með mark og assist. Ætli Tottenham fái ekki rautt spjald líka til að kóróna þessa frammistöðu.

Man Utd 1 - 2 Crystal Palace (14:00 á sunnudag)
Þessi Carrick farsi er búinn, verða yfirspilaðir af þessum free flowing Glasner bolta. Larsen og Munoz klára þetta áður en Sesko klórar í bakkann.

Arsenal 1 - 1 Chelsea (16:30 á sunnudag)
Það verður hiti hér, Enzo kemur Chelsea yfir áður en hann lætur reka sig útaf og Saliba jafnar eftir fast leikatriði.

Fyrri spámenn:
Páll Sævar (7 réttir)
Elliði Snær Viðarsson (6 réttir)
Hinrik Harðarson (6 réttir)
Arnar Laufdal (6 réttir)
Óskar Borgþórs (6 réttir)
Sævar Atli (6 réttir)
Ísak Bergmann (6 réttir)
Brynjar Atli (5 réttir)
Sandra Erlingsdóttir (5 réttir)
Björn Bragi (5 réttir)
Hjammi (5 réttir)
Martin Hermanns (5 réttir)
Kristján Óli (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ásgeir Frank (4 réttir)
Viktor Bjarki (4 réttir)
Viktor Gísli (4. réttir)
Nablinn (4 réttir)
Helgi Guðjónsson (4 réttir)
Thelma Karen (4 réttir)
Tumi Þorvars (4 réttir)
Gummi Ben (4 réttir)
Elín Helena (3 réttir)
Siggi Höskulds (3 réttir)
Sérfræðingurinn (2 réttir)
Valgeir Valgeirs (2 réttir)
Óðinn Svan (1 réttur)

Hér fyrir neðan má sjá stigatöfluna í deildinni.
Enski boltinn - Verða þau í mismunandi deildum á næsta tímabili?
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner
banner