Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   lau 27. apríl 2024 15:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bowen jafnaði met Di Canio - „Hefur eitthvað til að stefna að"
Mynd: EPA

Jarrod Bowen leikmaður West Ham jafnaði met Paolo Di Canio í dag þegar hann skoraði í jafntefli liðsins gegn Liverpool í dag.

Hann hefur skorað tuttugu mörk í öllum keppnum á tímabilinu. David Moyes hrósaði leikmanninum í hástert.


„Hamingjuóskir til hans með tuttugu mörk í öllum keppnum. Það er langt síðan einhver afrekaði það hjá West Ham. Hann er stórkostlegur leikmaður og ég vona að hann haldi þessu áfram," sagði Moyes.

Hann hefur skorað sextán mörk í úrvalsdeildinni en þar jafnaði hannmet Di Canio yfir flest mörk á einu tímabili í deildinni hjá leikmanni West Ham.

„Þar myndi ég vilja sjá þessi tuttugu mörk, ég vil að hann nái tuttugu mörkum í úrvalsdeildinni. Hann hefur eitthvað til að stefna að í síðsutu þremur leikjum," sagði Moyes.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner