Sean Dyche gerir tvær breytingar á liði Everton sem vann frábæran sigur í grannaslagnum á Goodison Park í síðustu umferð. Thomas Frank gerir einnig tvær breytingar á liði Brentford sem valtaði yfir Sheffield United.
Dominic Calvert-Lewin er ekki í leikmannahópnum. Youssef Chermiti kemur inn í liðið í hans stað. Vitalii Mykolenko haltraði af velli gegn Liverpool og er ekki klár í slaginn. Ashley Young kemur inn í hans stað.
Það eru góðar fréttir fyrir Brentford þar sem Ivan Toney er mættur aftur eftir meiðsli.
Christian Norgaard kemur einnig inn í liðið. Mikkel Damsgaard og Keane Lewis-Potter setjast á bekkinn.
Everton: Pickford, Godfrey, Tarkowski, Branthwaite, Young, Harrison, Garner, Gueye, McNeil, Doucoure, Chermiti
Brentford: Flekken, Ajer, Collins, Pinnock, Reguilon, Norgaard, Janelt, Jensen, Mbeumo, Wissa, Toney.