Aston Villa er 2-0 yfir gegn Chelsea á Villa Park, en síðari hálfleikur var að fara af stað.
Villa-menn eru að færast nær Meistaradeild Evrópu með þessari forystu.
Marc Cucurella skoraði í eigið net á 4. mínútu. John McGinn fékk boltann í miðjum teignum, setti hann í átt að marki, en þar var Cucurella sem fékk hann í sig og í netið.
Morgan Rogers tvöfaldaði forystuna undir lok hálfleiksins með skoti úr þröngu færi fyrir utan teiginn.
Sjáðu sjálfsmark Cucurella
Sjáðu markið hjá Rogers
Athugasemdir