Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   fim 30. janúar 2020 13:36
Elvar Geir Magnússon
Tilboði frá Chelsea í Mertens hafnað
Mertens í landsleik með Belgíu á Laugardalsvelli
Mertens í landsleik með Belgíu á Laugardalsvelli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tuttomercatoweb segir að Napoli hafi hafnað 8 milljóna evra tilboði frá Chelsea í belgíska sóknarmanninn Dries Mertens.

Chelsea hefur áhuga á þessum 32 ára leikmanni og er að reyna að ná samkomulagi við ítalska félagið.

Möguleiki er á fleiri tilraunum frá Lundúnafélaginu.

Chelsea vill fá sóknarmann til að minnka álagið á Tammy Abraham og þá gæti Olivier Giroud verið seldur.

Mertens hefur skorað 88 mörk í 219 leikjum fyrir Napoli en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2013.
Athugasemdir
banner
banner
banner