Marco Silva tekinn við hjá Benfica (Staðfest)
Portúgalska stórveldið Benfica er búið að tilkynna Marco Silva sem nýjan aðalþjálfara en hann kemur til félagsins úr röðum Fulham.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25085 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Portúgalska stórveldið Benfica er búið að tilkynna Marco Silva sem nýjan aðalþjálfara en hann kemur til félagsins úr röðum Fulham.
Silas Dylan Songani er búinn að fá félagaskipti til TelOne FC sem leikur í Simbabve eftir að hafa verið leikmaður Vestra á Ísafirði í fjögur ár.
Ítalski þjálfarinn Vincenzo Italiano er búinn að semja við tyrkneska stórveldið Besiktas um að þjálfa aðalliðið næstu tvö árin.
Wolverhampton Wanderers eru búnir að staðfesta félagaskipti Kieran Trippier eftir að samningur hans við Newcastle United rennur út í lok mánaðar.
Franski framherjinn Olivier Giroud verður áfram hjá Lille út næstu leiktíð þrátt fyrir að vera orðinn 39 ára gamall.
Hér að neðan má sjá lista yfir 20 vinsælustu fréttir Fótbolta.net í síðustu viku, raðað eftir hversu oft þær eru lesnar. Partístand Ronaldo og mikill áhugi á lykilmanni KR er meðal þess sem má finna á topplista vikunnar.
Fabio Grosso er tekinn við sem nýr stjóri Alberts Guðmundssonar og félaga í Fiorentina. Ítalinn skrifar undir tveggja ára samning við félagið. Grosso yfirgaf Sassaulo skömmu fyrir helgi en hann kom Sassuolo upp í Seríu A á síðasta ári og þá hafnaði liðið í 11. sæti á þessari leiktíð. Grosso er hvað þekktastur fyrir frammistöðu sína með Ítalíu á HM 2006. Hann skoraði fyrra markið í 2-0 sigri á Þjóðverjum í undanúrslitum mótsins og sigurvítið í vítakeppninni gegn Frökkum í úrslitaleiknum.
Divock Origi hefur lagt skóna á hilluna en belgíski sóknarmaðurinn er einungis 31 árs gamall. Hann er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool en þar skoraði hann nokkur eftirminnileg mörk. Hann skoraði t.a.m. frægt mark gegn Barcelona, í úrslitaleiknum gegn Tottenham í Meistaradeildinni og mjög svo eftirminnilegt mark gegn Everton. Hann er uppalinn hjá Genk og Lille og hélt svo til Liverpool árið 2014 og var þar til 2022. Hjá Liverpool skoraði hann 41 mark í 175 leikjum í öllum keppnum. Hann vann úrvalseildina, enska bikarinn, deildabikarinn, Meistaradeildina, ofurbikar Evrópu og HM félagsliða sem leikmaður Liverpool. Hann fór til AC Milan 2022 og rann samningur hans við félagið út síðasta sumar. Hann lék 32 leiki með belgíska landsliðinu og eitt af þremur landsliðsmörkum hans kom árið 2014 gegn Íslandi í vináttulandsleik.
Mexíkóski framherjinn Raul Jimenez er einn af þeim sem mun yfirgefa Fulham í sumar en samningur hans er að klárast og fær hann ekki nýjan samning hjá félaginu. Annar leikmaður sem er með lausan samning, Harry Wilson, hefur fengið tilboð frá félaginu, en óvíst er hvað hann mun gera. Wilson átti frábært tímabil og var valinn leikmaður ársins hjá félaginu. Marco Silva, sem er að taka við Benfica, vill fá hann með sér til Portúgals og þá hafa Aston Villa, Leeds og Everton einnig áhuga á því að fá velska kantmanninn.
Ingvar Jónsson hefur framlengt samning sinn við Víking og er hann nú samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027. Ingvar berst nú við krabbamein og hefur því ekki leikið með félaginu í undanförnum leikjum. Víkingur samdi við Ögmund Kristinsson á undanþágu frá KSÍ fyrr í dag og tilkynnti um framlengingu á samningi Ingvars samhliða því.
Ögmundur Kristinsson er genginn í raðir Víkings en hann kemur frá Val þar sem hann samdi um starfslok í síðustu viku. Samningurinn gildir út yfirstandandi tímabil. Hjá Víkingi mun hann veita Aroni Snæ Friðrikssyni samkeppni um stöðuna í liðinu. Víkingur óskaði eftir því að fá undanþágu frá KSÍ að fá Ögmund strax til sín í neyðarskiptum utan glugga vegna veikinda Ingvars Jónssonar og meiðsla Ugga Jóhanns Auðunssonar. Þegar þetta er skrifað er Ögmundur ekki kominn með leikheimild. <b>Uppfært 11:40:</b> Ögmundur er kominn með leikheimild með Víkingi frá og með morgundeginum.
Florentino Perez verður áfram forseti Real Madrid á Spáni til 2030 en þetta varð ljóst eftir úrslit kosningananna í kvöld. Hann hafði sigur gegn Enrique Riquelme.
Hollenska félagið Feyenoord hefur staðfest að Robin van Persie hafi verið látinn fara frá félaginu.
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton hefur fest kaup á nígeríska kantmanninum Zadok Yohanna frá sænska félaginu AIK. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Brighton í dag.
Hinn 62 ára gamli Tony Mowbray hefur verið ráðinn aftur til Blackburn Rovers fjórum árum eftir að hafa yfirgefið félagið til að taka svo við Sunderland sumarið 2022.
Milos Milojevic hefur verið ráðinn sem aðalþjálfari Al-Nasr sem leikur í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Ítalska félagið Inter hefur nýtt sér ákvæði um að kaupa Aleksandar Stankovic aftur til félagsins fyrir 23 milljónir evra. Stankovic er miðjumaður sem fæddist 2005 og hefur skrifað undir samning við Inter til 2030.
Tottenham tilkynnti í dag Andy Robertson sem nýjan leikmann félagsins. Hann verður formlega leikmaður félagsins 1. júlí. Í myndbandi Tottenham býður Michael Dawson, fyrrum fyrirliði Tottenham og bæði liðsfélagi og fyrirliði Robertson hjá Hull, hann velkominn til félagsins. Robertson, sem er 32 ára vinstri bakvörður, kemur frá Liverpool á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Bítlaborgarfélagið rann út. Robertson var í níu ár hjá Liverpool en hann var fenginn frá Hull. Hann var lykilmaður í liðinu sem vann ensku úrvalsdeildina tvisvar og Meistaradeildina. Alls vann hann níu titla með Liverpool.
Southampton hefur keypt markvörðinn Daniel Peretz frá Bayern München. Ísraelinn var á láni hjá Southampton seinni hluta tímabilsins og stóð sig mjög vel. Talið er að Southampton greiði um 7,5 milljónir evra fyrir Peretz sem verður 26 ára eftir rúman mánuð. Hann er uppalinn hjá Maccabi Tel Aviv og á að baki tólf A-landsleiki. Hann fór til Bayern árið 2023 og kom við sögu í sjö keppnisleikjum með Bæjurum.
Sara Björk Gunnarsdóttir er gengin í raðir uppeldisfélagsins Hauka eftir átján ára fjarveru. Haukar tilkynntu um komu hennar heim í Hafnarfjörðinn á samfélagsmiðlum sínum - myndbandið má sjá neðst í fréttinni og í lok þess sést að Sara verður í treyju númer 77 hjá Haukum. Haukar munu svo klukkan 15:00 halda fréttamannafund í knatthúsi sínu. Hún snýr til Hauka eftir að hafa spilað með Breiðabliki, Rosengård, Wolfsburg, Lyon, Juventus og síðast Al Qadsiah í Sádi-Arabíu. Sara Björk (1990) er fyrrum landsliðsfyrirliði og næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins með 145 leiki. Hún fór með Íslandi á EM 2009, 2013, 2017 og 2022. Hún vann Meistaradeild Evrópu bæði sem leikmaður Wolfsburg og Lyon. Hún varð sænskur meistari fjórum sinnum, þýskur meistari fjórum sinnum og einu sinni franskur meistari. Hún vann fjóra bikartitla í Þýskalandi, einn bikartitil í Svíþjóð, einn bikartitil í Frakklandi og árið 2023 varð hún bikarmeistari með Juventus á Ítalíu. Haukar eru í toppsæti Lengjudeildarinnar með fullt hús eftir fimm leiki. Félagaskiptaglugginn opnar 16. júlí.