Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 02. janúar 2021 14:04
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið C. Palace og Sheff. Utd: Níu leikmenn frá hjá gestunum
John Fleck kemur inn í byrjunarliðið.
John Fleck kemur inn í byrjunarliðið.
Mynd: Getty Images
Leikur Crystal Palace og Sheffield United hefst klukkan 15:00 á Selhurst Park. Leikurinn er í beinni útsendingu á Síminn Sport.

Palace er í 15. sæti deildarinnar og Sheffield er í botnsætinu með tvö stig. Palace gerði 1-1 jafntefli gegn Leicester í síðustu umferð og Sheffield tapaði gegn Burnley.

Roy Hodgson, stjóri Palace, gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Joel Ward og James McArthur koma inn fyrir þá Jairo Riedelwald og Nathaniel Clyne.

Chris Wilder, stjóri Sheffield, gerir þrjár breytingar á sínu liði. Í tilkynningu Sheffield United, þegar byrjunarliðið var opinberað, segir að níu leikmenn séu frá vegna leikbanna, meiðsla eða veikinda. Jayden Bogle byrjar sinn fyrsta leik í úrvalsdeildinni og þeir John Fleck og Oli Norwood koma einnig inn í byrjunarliðin.

Byrjunarlið C. Palace: Guaita, Ward, Kouyate, Tomkins, Mitchell, Townsend, Milivojevic, McArthur, Schlupp, Zaha, Benteke.

Byrjunarlið Sheffield Utd: Ramsdale, Bogle, Basham, Egan, Stevens, Osborn, Ampadu, Norwood, Fleck, McGoldrick, Mousset.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner