Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Haaland hefur miklar mætur á Zlatan
Mynd: Getty Images
Erling Braut Haaland, sem hefur farið feykilega vel af stað með Borussia Dortmund, hefur miklar mætur á Zlatan Ibrahimovic, sóknarmanni AC Milan.

Haaland var spurður út í Zlatan og hafði ekkert nema gott að segja um sænsku goðsögnina.

„Mér líkar við hugarfarið hans Ibrahimovic og hvernig hann sér hluti í öðru ljósi en aðrir í knattspyrnuheiminum," sagði Haaland.

„Mér líkar einnig hvernig hann skiptir um félög. Það er ekki auðvelt að flytja og aðlagast nýrri deild í hvert skipti en það hefur aldrei verið vandamál fyrir hann.

„Hann skiptir um deild og byrjar strax að raða inn mörkunum. Mér finnst það magnað."

Athugasemdir
banner