Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 03. mars 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Papastathopoulos gæti yfirgefið Arsenal í sumar
Mynd: Getty Images
Gríski varnarmaðurinn Sokratis Papastathopoulos segist ekki hika við að fara frá Arsenal í sumar ef hann verður óánægður með spiltíma sinn hjá liðinu.

Hinn 31 árs gamli Papastathopoulos skoraði laglegt mark í 2-0 sigri á Portsmouth í enska bikarnum í gær en hann hefur spilað átján leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

Papastathopoulos verður samningslaus sumarið 2021 en hann gæti farið fyrr ef hann verður ósáttur með hlutverk sitt.

„Ég á eitt ár eftir af samningi hér en ég sit aldrei á samningi mínum," sagði Papastathopoulos.

„Mér er sama. Ef ég er ekki ánægður og spila ekki nóg eða ef þjálfarinn kann ekki vel við mig, þá er mér sama um samninginn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner