Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 12:07
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Glódís þýskur meistari annað árið í röð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bayern er þýskur meistari annað árið í röð eftir sigur á Leverkusen í dag.


Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði Bayern, var á sínum stað í byrjunarliðinu. Liðið var með 2-0 forystu í hálfleik en Leverkusen minnkaði muninn eftir rúmlega klukkutíma leik en nær komust þær ekki.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er á láni hjá Leverkusen frá Bayern en hún var í byrjunarliðinu í dag og spilaði tæpar 80 mínútur.

Cecilía Rán Rúnarsdóttir er á mála hjá Bayern en hún hefur ekkert komið við sögu á tímabilinu vegna meiðsla en hún er nýbyrjuð að æfa.

Bayern hafði betur gegn Wolfsburg í baráttunni um titilinn en Sveindís Jane Jónsdóttir er leikmaður Wolfsburg. Enn eru tvær umferðir eftir af deildinni.


Athugasemdir
banner
banner
banner