Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
banner
   lau 04. maí 2024 23:00
Brynjar Ingi Erluson
Inzaghi staðfestir komu Taremi - „Mikilvægur leikmaður“
Mynd: Getty Images
Simone Inzaghi, þjálfari Inter á Ítalíu, hefur staðfest komu íranska landsliðsmannsins Mehdi Taremi en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Porto í sumar.

Ítalski íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano greindi frá þvi í febrúar að Inter væri búið að ganga frá samkomulagi við Taremi.

Þessi 31 árs gamli leikmaður var bókaður í læknisskoðun og skrifaði undir tveggja ára samning við ítalska félagið.

Inzaghi hefur nú staðfest skiptin.

„Já, við höfum gengið frá samningum við Mehdi Taremi, sem kemur á frjálsri sölu frá Porto. Hann er mikilvægur leikmaður í landsliðsklassa. Hann hefur skorað mörg mörk og við erum ánægðir með þessi skipti,“ sagði Inzaghi við DAZN.

Taremi hefur komið að fimmtán mörkum með Porto í 32 leikjum á þessari leiktíð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner