Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   fös 03. maí 2024 18:08
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Luton og Everton: Calvert-Lewin og Adebayo klárir í slaginn
Mynd: EPA

Það er gríðarlega spennandi leikur í fallbaráttunni í kvöld þegar Luton og Everton eigast við.


Luton getur rifið sig upp úr fallsæti í bili að minnsta kosti með sigri. Rob Edwards gerir tvær breytingar á liðinu sem tapaði gegn Wolves í síðustu umferð. Elijah Adebayo og Fred Onyedinma eru í liðinu á kostnað Jordan Clark og Daiki Hashioka.

Dominic Calvert-Lewin er klár í slaginn og er í byrjunarliði Everton á kostnað Youssef Chermiti sem sest á bekkinn.

Seamus Coleman og Beto eru einnig á bekknum eftir að hafa jafnað sig af meiðslum.

Luton: Kaminski, Osho, Mengi, Burke, Onyedinma, Doughty, Barkley, Chong, Lokonga, Morris, Adebayo.

Everton: Pickford; Godfrey, Tarkowski, Branthwaite, Young; Gueye, Garner; Harrison, Doucoure, McNeil; Calvert-Lewin.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner