Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 05. september 2021 06:00
Aksentije Milisic
Chiellini gefur í skyn að hann vilji fá Akanji til Juve
Reus og Akanji.
Reus og Akanji.
Mynd: Getty Images
Giorgio Chiellini, miðvörður Juventus, hefur gefið það í skyn að hann vilji fá Manuel Akanji, leikmann Swiss, til þess að fylla í sitt skarð hjá Juventus þegar hann hættir.

Ítalía mætir Sviss í dag í undankeppni HM og talaði Chiellini vel um Akanji fyrir leikinn.

„Ég hef alltaf verið hrifinn af honum, hann er að nálgast aldurinn þar sem fer að ná hæstu hæðum, hann þarf ennþá þetta loka skref," sagði Chiellini um þennan leikmann Dortmund.

„Það mun losna pláss fljótlega þegar ég hætti, svo það verður pláss... hélt Chiellini áfram.

Chiellini skrifaði hins vegar undir tveggja ára samning við Juventus og þá vonast hann eftir því að spila með Ítalíu á sínu síðasta stórmóti eftir rúmlega eitt ár.
Athugasemdir
banner