Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 08. júlí 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Real tilbúið að greiða himinháa upphæð fyrir Milinkovic-Savic
Milinkovic-Savic er orðaður við Real Madrid.
Milinkovic-Savic er orðaður við Real Madrid.
Mynd: Getty Images
Real Madrid er tilbúið að borga allt að 137 milljónir punda fyrir Sergej Milinkovic-Savic, leikmann Lazio ef eitthvað er að marka umboðsmann leikmanssins.

Mateja Kezman, fyrrum leikmaður liða líkt og Chelsea og Atletico Madrid er umboðsmaður Milinkovic-Savic. Kezman kíkti í hádegismat með Claudio Lotito, eiganda Lazio til þess að ræða framtíð þessa 23. ára gamla leikmanns.

Manchester United hafa einnig verið orðaðir við Milinkovic-Savic en yfirmenn á Bernabeu sjá leikmanninn sem frábæra viðbót við hópinn fari svo að Cristiano Ronaldo yfirgefi félagið.

Milinkovic-Savic var í eldlínunni með serbneska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í Rússlandi þar sem hann þótti standa sig ágætlega. Hann hefur áður gefið út að hann myndi ekki íhuga framtíð sína fyrr en eftir mótið.
Athugasemdir
banner
banner