Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 09. september 2020 15:12
Magnús Már Einarsson
Gunni Borgþórs spáir í leiki umferðarinnar í Pepsi Max-deild kvenna
Gunnar Borgþórsson.
Gunnar Borgþórsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vinnur í kvöld samkvæmt spá Gunna.
Breiðablik vinnur í kvöld samkvæmt spá Gunna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gunnar Magnús Jónsson var með þrjá rétta þegar hann spáði í leikina í Pepsi Max-deild kvenna í síðustu umferð.

Gunnar Borgþórsson, fyrrum þjálfari Selfyssinga, spáir í leikina að þessu sinni.



KR 1 - 2 ÍBV (17:00 í dag)
ÍBV hefur verið að ná góðum úrslitum, spila þéttan varnarleik í dag og vinna á hraðaupphlaupum. Guðmunda Brynja klórar í bakkann fyrir KR.

Selfoss 0 - 0 Valur (17:00 í dag)
Stöðubarátta á vellinum þar sem landsliðsmenn beggja liða verða í aðalhlutverki. Bæði lið verða of passasöm, og leikurinn endar í dauðu jafntefli.

FH 1 - 3 Fylkir (17:00 í dag)
Fylkir leiðir leikinn með baráttu allar 90 mínúturnar. Ekki fallegasti fótboltaleikurinn í umferðinni en góð 3 stig á Fylki sem ætlar sér að berjast um þriðja sætið.

Þróttur R. 2 - 1 Þór/KA (18:00 í dag)
Þróttur vinnur slaginn um sjöunda sætið í bili og halda áfram að koma á óvart.

Breiðablik 3 - 0 Stjarnan (19:15 í kvöld)
Stjarnan kemur inn í leikinn með sjálfstraust eftir góðan sigur á Selfossi í síðustu umferð. Gæðin í Breiðablik eru einfaldlega töluvert meiri en hjá Stjörnunni og þær sigla þessu örugglega heim

Fyrri spámenn
Kristín Ýr Bjarnadóttir - 4 réttir
Bára Kristbjörg Rúnarsdóttir - 3 réttir
Bjarni Helgason - 3 réttir
Gunnar Magnús Jónsson - 3 réttir
Halldór Jón Sigurðsson - 3 réttir
Sandra María Jessen - 3 réttir
Natasha Anasi - 2 réttir
Oliver Sigurjónsson - 2 réttir
Orri Sigurður Ómarsson - 2 réttir
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner