Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 11. júní 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
U21 árs landsliðið mætir Kýpur á Víkingsvelli - Umspilssæti í boði
U21 árs landsliðið spilar við Kýpur
U21 árs landsliðið spilar við Kýpur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska karlalandsliðið skipað leikmönnum 21 árs og yngri mætir Kýpur í lokaleik riðilsins í undankeppni Evrópumótsins á Víkingsvelli í kvöld.

Liðið er sem stendur í 3. sæti riðilsins með 15 stig, tveimur stigum á eftir Grikklandi.

Grikkland mætir Portúgal á sama tíma og Ísland leikur við Kýpur en Portúgal er í efsta sæti riðilsins með 25 stig og búið að tryggja sig inn á EM.

Ef Grikkland tapar og Ísland vinnur þá fer íslenska liðið í umspil.

Leikir dagsins:

Landslið karla - U21 - Undankeppni EM
19:15 Portúgal-Grikkland (Estádio Cidade de Barcelos)
19:15 Ísland-Kýpur (Víkingsvöllur)
Athugasemdir
banner
banner
banner