Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 13. mars 2021 09:25
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Gluggadómar og enskt hringborð í útvarpinu
Mynd: Fótbolti.net
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net verður að sjálfsögðu á sínum stað milli klukkan 12 og 14:00 í dag.

Íslenski boltinn skipar stórans sess í þættinum að venju og farið verður yfir félagaskiptagluggann hjá liðunum í Pepsi Max-deildinni. Félögin fá einkunnir eftir því hvernig gengið hefur í glugganum.

Enska hringborðið verður dregið fram og Kristján Atli Ragnarson, stuðningsmaður Liverpool, fer yfir nýliðinn fjórðung í ensku úrvalsdeildinni.

Að vanda verður síðan kafað ofan í fréttir vikunnar og helstu fótboltamálin skoðuð.

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er á X-inu alla laugardaga kl. 12-14. Umsjónarmenn þáttarins eru Tómas Þór Þórðarson og Elvar Geir Magnússon. Hægt er að finna þá á X samfélagsmiðlinum undir @tomthordarson og @elvargeir.

Smelltu hér til að hlusta á upptökur úr eldri þáttum.

Þú getur hlustað á X-ið á netinu með því að smella hérna

Athugasemdir
banner