Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 18. maí 2021 17:00
Elvar Geir Magnússon
Arteta: Hodgson er goðsögn sem ég dáist að
Roy Hodgson.
Roy Hodgson.
Mynd: Getty Images
Það verða kaflaskil hjá Roy Hodgson eftir tímabilið en í morgun var tilkynnt að hann myndi láta af störfum hjá Crystal Palace þegar samningur hans rennur út.

Mikel Arteta, stjóri Arsenal, fór fögrum orðum um þennan 73 ára stjóra á fréttamannafundi.

„Hann er algjör goðsögn sem hefur gert frábæra hluti fyrir fótboltann, fyrir enska boltann," segir Arteta.

„Það sem hann hefur gert sem stjóri og hjá mismunandi félögum er merkilegt. Hann hefur verið svo lengi í bransanum og alltaf verið til fyrirmyndar. Hann er svo sannarlega fyrirmynd fyrur ungan þjálfara eins og mig."

„Hann er einstaklingur sem ég dáist að."
Athugasemdir
banner
banner