Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   þri 21. júlí 2020 22:16
Mist Rúnarsdóttir
Hallbera: Sé þær ekki tapa mörgum stigum
Hallbera var eðlilega afar ósátt við úrslitin á Kópavogsvelli í kvöld
Hallbera var eðlilega afar ósátt við úrslitin á Kópavogsvelli í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hallbera Guðný Gísladóttir, fyrirliði Vals, var eðlilega sár og svekkt eftir stórt tap gegn Breiðablik.

„Ég er drullufúl. Við áttum ágætis fyrri hálfleik. Mér fannst hann í járnum. Bæði lið voru að stríða hvoru öðru og þau hefðu bæði getað skorað. Við förum svo inn í hálfleik og ætlum bara að halda áfram og reyna að bæta í en það springur í andlitið á okkur. Við fáum á okkur tvö mörk snemma í seinni hálfleik sem að eiginlega drepur okkur niður. Ég hefði viljað sjá okkur bregðast við þessum mörkum með því að setja aðeins á þær en þær eru með það gott lið að þær gengu á lagið og rúlluðu yfir okkur í dag,“ sagði Hallbera um leikinn.

Lestu um leikinn: Breiðablik 4 -  0 Valur

Aðspurð um hvað úrslitin þýddu fyrir framhaldið svaraði Hallbera:

„Þetta þýðir að nú erum við farnar að elta. Það þýðir ekkert að mótið sé búið en nú þurfum við bara að klára okkar leiki. Við erum að fara í erfiða leiki. Það er fullt af góðum liðum í þessari deild. Við þurfum að fókusa á sjálfar okkur. En það er í höndum Blika núna hvernig mótið fer. Ég sé þær svosem ekkert tapa mörgum stigum en við höldum okkar dampi og ætlum aftur á sigurbraut.“

Nánar er rætt við fyrirliða Vals í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner