Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 24. júlí 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Hughton að taka við Bristol City
Mynd: Getty Images
Chris Hughton verður væntanlega staðfestur sem nýr stjóri Bristol City um helgina.

Hinn 61 árs gamli Hughton er að taka við Bristol af Lee Johnson sem var rekinn á dögunum.

Hughton hefur áður farið upp úr Championship deildinni með Brighton og Newcastle.

Þá stýrði hann Birmingham í umspilið á sínum tíma.

Bristol City hefur verið í efri hluta Championship deildarinnar undanfarin ár og forráðamenn félagsins vonast til að Hughton geti hjálpað liðinu við að komast upp.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner