Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 30. október 2019 09:30
Magnús Már Einarsson
16 ára Elliott gæti spilað sinn fyrsta leik á Anfield
Mynd: Getty Images
Hinn 16 ára gamli Harvey Elliott gæti spilað sinn fyrsta leik á Anfield í kvöld þegar Liverpool fær Arsenal í heimsókn í enska deildabikarnum.

Elliott kom til Liverpool frá Fulham í sumar og hann spilaði vel í útileik gegn MK Dons í síðasta leik í enska deildabikarnum.

Elliott var að klára að afplána 14 daga bann sem hann var dæmdur í fyrir að gera grín að Harry Kane á samfélagsmiðlum. Elliott gæti spilað sinn fyrsta leik á Anfield í kvöld.

„Við metum ekki gleyma því að hann er einungis 16 ára. Við þurfum að passa upp á hann," sagði Pep Lijnders aðstoðarstjóri Liverpool.

„Síðan ég byrjaði að vinna með honum hef ég séð strák sem er mjög klár. Hann hefur mikla ástríða fyrir leiknum."
Athugasemdir
banner
banner
banner