Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
Davíð Smári: Menn labba ekki nægilega gíraðir inn í seinni hálfleikinn
Heimir: FH liðið er besta liðið í deildinni í að koma til baka
Andri Rúnar: Eftir jöfnunarmarkið vöknum við ekki aftur til lífsins
Sigurvin: Kredit á strákana að finna þetta afl
Chris Brazell: Við voru mikið með boltann en gerðum ekkert með hann
Siggi Höskulds svekktur: Fókusleysi á mikilvægum augnablikum
Magnús Már: Maður hefur séð ýmislegt í boltanum en ég hef sjaldan séð þetta áður
Gunnar Heiðar: Búnir að æfa í sex mánuði fyrir þennan leik
Vigfús Arnar: Var eins og spennustigið væri eitthvað skrítið hjá okkur
Aron Snær: Ætluðum að keyra á þetta og það verður held ég bara okkar mottó
Haraldur Freyr: Mótið tapast ekki eða vinnst í fyrstu umferð
Aníta Dögg bjargaði málunum: Ég lenti klukkan sex í morgun
Árni Freyr hæstánægður eftir sigur ÍR - „Vona að þeir bæti í"
Staða sem á ekki að koma upp - „Átti að spila þangað til klukkan 23:30 í gærkvöldi"
„Við vitum í hverju við erum góðar“
Búin að skora í öllum leikjunum til þessa - „Mín upprunalega staða"
Hugur allra hjá Andreu Marý - „Óþægilegt í alla staði"
„Það var ráðist á hana inn í okkar vítateig“
Skyndiákvörðun að taka skóna af hillunni - „Hvernig gerðist þetta?“
Þriðja tapið í þriðja leiknum - „Óásættanlegt“
   sun 30. júní 2019 19:29
Elvar Geir Magnússon
Kolbeinn: Allt í óvissu hjá mér núna
Kolbeinn Birgir Finnsson.
Kolbeinn Birgir Finnsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Lánssamningur Kolbeins Birgis Finnssonar við Fylki rennur út á miðnætti en hann er á láni frá Brentford. Árbæingar vilja halda honum en flækjustigin eru nokkur.

Lestu um leikinn: Fylkir 3 -  2 KA

Eftir sigur Fylkis gegn KA í dag var Kolbeinn spurður að því hvort þetta hefði verið hans síðasti leikur fyrir Fylki?

„Satt að segja veit ég það ekki. Samningurinn er runninn út, Fylkir reynir örugglega að halda mér og ég er alveg til í það. Ég á eftir að skoða þetta, það hefur verið alveg ótrúlega gaman. En maður þarf að hugsa þetta rökrétt," segir Kolbeinn.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa fleiri erlend félög áhuga á Kolbeini og voru einhverjir útsendarar í stúkunni í dag.

„Maður hefur heyrt af einhverjum áhuga hér og þar. Það er allt í óvissu núna."

Fylkir skoraði sigurmarkið í blálokin gegn KA.

„Þetta var geðveikur karakter og ég er ótrúlega stoltur af þessu.," segir Kolbeinn sem ræðir nánar um leikinn í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner