Chelsea kaupir táning frá Kasakstan (Staðfest)
Chelsea er búið að ganga frá kaupum á Dastan Satpaev, ungum framherja frá Kasakstan.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25111 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Chelsea er búið að ganga frá kaupum á Dastan Satpaev, ungum framherja frá Kasakstan.
Hollenska stórveldið Feyenoord er búið að reka Brian Priske úr þjálfarasæti félagsins eftir um sjö mánuði í starfi.
Fótbolti.net hefur fengið það staðfest að Úlfur Arnar Jökulsson hefur verið rekinn sem þjálfari Fjölnis. Það vekur athygli að Fjölnir ráðist í þessar aðgerðir á þessum tímapunkti. Heimildarmaður Fótbolta.net segir að ákveðin deyfð hafi verið yfir liðinu, stemningsleysi og óánægja með umgjörð. Stjórnin hafi talið sig knúna til að taka þessa ákvörðun.
Finnbogi Laxdal er genginn aftur í raðir Kára eftir að hafa leikið með Haukum í fyrra. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Kári fær til sín fyrir komandi tímabil en liðið komst upp úr 3. deild í fyrra.
Aston Villa hefur tryggt sér krafta Yasin Özcan en hann kemur til félagsins í sumar. Kaupin eru frágengin en þar sem félagaskiptaglugginn er ekki opinn þá kemur Özcan ekki fyrr en í sumar. Özcan er tyrkneskur unglingalandsliðsmaður sem kemur frá Kasimpasa í heimalandinu. Hann er 18 ára varnarmaður sem verður 19 ára í apríl. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður. Þrátt fyrir að vera ekki orðinn 19 ára hefur hann verið í U21 landsliðinu síðan árið 2023.
Bebe, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur samið við spænska félagið Ibiza. Hann mun núna spila á partíeyjunni frægu. Bebe, sem er orðinn 34 ára, gekk í raðir Man Utd árið 2010. Það er fræg saga að hann sé eini leikmaðurinn sem Sir Alex Ferguson horfði ekki á spila áður en hann keypti hann. Það var Carlos Queiroz, fyrrum aðstoðarmaður Ferguson, sem mældi með Bebe og Ferguson ákvað að treysta því.
Hinn 19 ára gamli Jakob Byström er genginn í raðir Fram en hann kemur frá Svíþjóð. Hann er sóknarmaður sem fagnar tvítugsafmæli sínu á morgun. Hann er kominn með leikheimild. Fylgjendur Fram á samfélagsmiðlum tóku eftir því fyrir áramót að Fram <a href="https://www.facebook.com/groups/33913878566?multi_permalinks=10161928992683567&hoisted_section_header_type=recently_seen" target="_blank">auglýsti eftir húsnæði</a> fyrir ungan fótboltamann frá Svíþjóð og er Byström sá maður. Það eru ekki til mikið af gögnum um leikmanninn á netinu en hann hefur verið hjá IFK Stocksund sem er í þriðju efstu deild Svíþjóðar.
Markvörðurinn Stefán Óli Hallgrímsson er búinn að samþykkja samning við Grindavík og mun hann spila með liðinu í sumar.
Njarðvík er búið að krækja í tvo nýja leikmenn sem eiga að breikka leikmannahópinn fyrir næstu leiktíð í Lengjudeild karla.
Magni í Grenivík er búinn að styrkja leikmannahópinn hjá sér með fjórum nýjum leikmönnum í tilraun til að komast upp úr 3. deildinni.
Ægir í Þorlákshöfn var að styrkja sig með þremur nýjum leikmönnum sem eiga að hjálpa liðinu í 2. deildinni í sumar.
KR-ingar eru búnir að krækja sér í gríðarlega öflugan sóknarleikmann sem kemur til liðsins úr bandaríska háskólaboltanum.
Dalvík/Reynir hefur samið við franskan framherja sem heitir Rémi Marie Emeriau.
Ástralski sóknarleikmaðurinn Jordan Smylie, fæddur árið 2000, er búinn að skrifa undir eins árs samning við Reyni Sandgerði.
Jónatan Guðni Arnarsson á átján ára afmæli í dag og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við sænska félagið Norrköping. Vængmaðurinn er keyptur frá uppeldisfélagi sínu Fjölni og skrifaði undir samning til fjögurra ára. <i>„Jónatan fór í haust tvívegis til reynslu hjá sænska liðinu og stóð sig frábærlega vel og því ekki furða að þeir hafi nælt sér þennan magnaða leikmann og frábæra dreng. Til hamingju Jónatan með nýju vegferðina og til hamingju með 18 ára afmælisdaginn,"</i> segir í tilkynningu Fjölnis.
Dagur Austmann Hilmarsson hefur lagt skóna á hilluna en hann staðfesti það í samtali við Fótbolta.net. Rætt var um að hann væri búinn að leggja skóna á hilluna í útvarpsþættinum Fótbolta.net í gær og í samtali við fréttamann staðfesti að hann að það væri rétt. Dagur segir ástæðuna vera þrálát meiðsli. <i>„Aðalástæðan eru meiðsli, skrokkurinn á mér er alltaf að gefa sig,"</I> segir Dagur sem hefur mikið verið fjarri vegna meiðsla á sínum ferli.
Magni hefur nælt í Bjarka Þór Viðarsson frá Þór fyrir átökin í 3. deildinni í sumar.
ÍR hefur fengið Breka Hólm Baldursson á láni frá KA út tímabilið.
Harley Willard er búinn að skrifa undir eins árs samning við Selfoss en fyrr í þessari viku var sagt frá því að hann væri við það að ganga í Þór. Willard er Skoti sem fer á Selfoss eftir tvö ár hjá KA. Samkvæmt heimildum var það langt komið að hann færi í Þór en hann hafði áður verið í viðræðum við Selfoss sem kom með betrumbætt tilboð sem Willard ákvað að samþykkja.
KA hefur krækt í Bjarka Fannar Helgason frá Hetti/Hugin og skrifar Bjarki undir samning við KA út árið 2028. Í tilkynningu H/H er sagt frá því að hann muni spila með liðinu í sumar áður en hann fer endanlega til Akureyrar. Það er sterk tenging milli félaganna því KA-maðurinn Ívar Arnbro Þórhallsson var á láni hjá H/H síðasta sumar og Árni Veigar Árnason er dæmi um annan leikmann sem uppalinn er hjá Hetti og er samningsbundinn KA. Bjarki Fannar er miðjumaður sem fæddur er árið 2005. Hann lék 21 deildarleik með H/H síðasta sumar og skoraði fimm mörk í 2. deild. Hann er uppalinn hjá Hetti en var árið 2021 í yngri flokkum Fjölnis.