Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fös 01. janúar 2021 21:58
Ívan Guðjón Baldursson
England: Man Utd jafnar Liverpool á toppnum
Mynd: Getty Images
Man Utd 2 - 1 Aston Villa
1-0 Anthony Martial ('40)
1-1 Bertrand Traore ('58)
2-1 Bruno Fernandes ('61, víti)

Manchester United er búið að jafna Englandsmeistara Liverpool á stigum á toppi úrvalsdeildarinnar eftir flottan sigur á sterku liði Aston Villa.

Fyrri hálfleikurinn var fjörugur þar sem bæði lið fengu góð færi án þess að skora þar til Anthony Martial gerði frábærlega að koma sér framfyrir varnarmenn Villa og skalla fyrirgjöf frá Aaron Wan-Bissaka í netið.

Rauðu djöflarnir fóru inn í leikhlé með verðskuldaða forystu en gestirnir úr Birmingham mættu grimmir inn í síðari hálfleikinn. Þeir komust nálægt því að skora áður en Bertrand Traore gerði loks jöfnunarmarkið eftir góða sendingu frá Jack Grealish.

Það leið þó aðeins um mínúta þar til Man Utd var komið í sókn og fékk umdeilda vítaspyrnu, sem Bruno Fernandes skoraði úr.

Leikurinn var áfram galopinn og fjörugur þar sem bæði lið komust hársbreidd frá því að gera fjórða markið mikilvæga sem annað hvort jafnar leikinn eða drepur hann. Marcus Rashford átti skot í stöng og var Jack Grealish afar líflegur en boltinn rataði ekki í netið þrátt fyrir góðar tilraunir gestanna undir lokin.

Niðurstaðan 2-1 sigur Man Utd í afar fjörugum leik. Man Utd deilir toppsætinu með Liverpool með 33 stig eftir 16 umferðir.

Villa situr áfram í 5-10. sæti þar sem öll lið eru með 26 stig.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner