Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 01. janúar 2021 08:00
Victor Pálsson
Viss um að Maitland-Niles muni kveðja Arsenal
Mynd: Getty Images
Ainsley Maitland-Niles mun leitast eftir því að komast burt frá Arsenal árið 2021 að sögn Kevin Campbell sem lék eitt sinn með félaginu.

Maitland-Niles er ekki fastamaður undir Mikel Arteta og hefur aðeins byrjað fjóra deildarleiki á tímabilinu.

„Ég held að hann muni reyna að komast burt í sumar," sagði Campbell við Football Insider.

„Þó að hann elski félagið þá er hann enskur landsliðsmaður í dag og þarf að spila fótbolta. Það er enginn tilgangur með því að elska félagið og spila af og til."

„Hann hefur sannað hvað hann getur margoft og enskur landsliðsmaður á bekknum mun ekki endast."
Athugasemdir
banner
banner
banner