Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   sun 01. maí 2022 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Meistaradeildarbarátta og Everton í dauðaleit að stigum
Arsenal mætir West Ham
Arsenal mætir West Ham
Mynd: EPA
Þrír mikilvægir leikir eru á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag en það er eitthvað undir í öllum leikjunum.

Everton fær Chelsea í heimsókn á Goodison Park. Everton er í slæmum málum en liðið situr í 18. sæti deildarinnar með 29 stig, fimm stigum á eftir Burnley og Leeds en á tvo leiki til góða.

Chelsea á meðan er í 3. sætinu með 66 stig og vill tryggja það sæti sem allra fyrst en liðið er aðeins með sex stiga forystu á Arsenal.

Tottenham mætir þá Leicester í Lundúnum. Staðan er einfaldlega þannig að liðið þarf að vinna meirihluta leikjanna sem það á eftir til að eiga möguleika á 4. sætinu og síðasta sætinu sem gefur þátttökumiða í Meistaradeildina. Leicester siglir um miðja deild og er í 11. sætinu.

Það er annar mikilvægur leikur í Lundúnum en þar mætast West Ham og Arsenal. West Ham ætlar ekki að gefa baráttuna um Meistaradeildarsæti upp á bátinn og getur svo sannarlega hrist upp í hlutunum með sigri á Arsenal.

Leikir dagsins:
13:00 Everton - Chelsea
13:00 Tottenham - Leicester
15:30 West Ham - Arsenal
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner