Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 01. júní 2021 06:00
Aksentije Milisic
Bróðir Aguero lét Guardiola heyra það
Mynd: Getty Images
Mauricio del Castillo, bróðir Sergio Aguero, skrifaði færslu á Twitter í gær þar sem hann lét stjóra Manchester City, Pep Guardiola, heyra það.

Castillo sagði að Pep vildi aldrei Aguero frá því hann kom til City. Castillo eyddi síðan færslunni stuttu seinna en hann kvaðst vera sáttur með hversu margir sáu hana.

„„Ég er sáttur með að fólk hafi séð þetta, ég skrifa þetta mögulega aftur einn daginn,“ sagði Castillo í kjölfarið.

Sergio Aguero gekk í dag í raðir Barcelona en hann var í tíu ár hjá Manchester City og átti þar ógleymanlega tíma.

Aguero lék sinn síðasta leik fyrir City um helgina en hann kom þá inn á sem varamaður í 1-0 tapi gegn Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner