Cesc Fabregas, miðjumaður Chelsea, var svekktur eftir tap Spánar gegn Rússlandi í vítaspyrnukeppni á Heimsmeistaramótinu núna áðan. Spánverjar falla úr leik í 16-liða úrslitum.
Fabregas var ekki valinn í leikmannahóp Spánar fyrir mótið og fékk því vinnu hjá BBC að starfa sem sérfræðingur í kringum HM.
Fabregas var ekki valinn í leikmannahóp Spánar fyrir mótið og fékk því vinnu hjá BBC að starfa sem sérfræðingur í kringum HM.
„Ég er orðlaus vegna þess að ég bjóst við öðruvísi leik í dag," sagði Fabregas eftir tap Spánverja.
„Spánn er miklu betri lið en Rússland. Rússar voru með plan sem var að fara í vítaspyrnukeppni og vonast það besta, því miður heppnaðist það fyrir þá."
„Andres Iniesta á það ekki skilið að fara út svona, þetta var líklega hans síðasti landsleikur."
Athugasemdir