Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 02. apríl 2021 08:30
Victor Pálsson
Maddison gæti snúið aftur gegn Man City
Mynd: Getty Images
James Maddison, leikmaður Leicester, gæti snúið aftur á völlinn um helgina þegar liðið mætir Manchester City.

Þetta hefur Brendan Rodgers, stjóri Leicester, staðfest en Maddison hefur verið meiddur síðustu vikur.

Maddison hefur ekkert spilað síðan um miðjan febrúar og missti af landsleikjaverkefni Englands í kjölfarið.

Leicester spilar afar erfiðan leik gegn toppliði Man City á heimavelli en leikurinn er klukkan 16:30 á morgun.

Það væri mikil vítamínsprauta fyrir liðið ef Maddison nær að byrja þennan leik.
Athugasemdir
banner
banner